Lítið hefur þokast í samkomulagsátt í kjaraviðræðum BSRB við viðsemjendur undanfarna daga. Rætt hefur verið um útfærslu styttingu vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki og jöfnun launa milli markaða án þess að niðurstaða hafi náðst. Verkföll aðildarfélaga bandalagsins munu hefjast mánudaginn 9. mars ef kjarasamningar nást ekki fyrir þann tíma.
„Það eru mikil vonbrigði að við höfum ekki náð að þokast nær ásættanlegri niðurstöðu. Það er stutt í að verkfallsaðgerðir hefjist og mörg stór mál sem bíða úrlausnar,“ er haft eftir Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formanni BSRB, í fréttatilkynningu frá félaginu.
Kjarasamningar þorra aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá 1. apríl í fyrra, eða í um 11 mánuði. Aðildarfélög bandalagsins hafa falið BSRB að semja um stór sameiginleg mál á borð við styttingu vinnuvikunnar, orlofsmál, launaþróunartryggingu, jöfnun launa á milli markaða og fleira. Launaliðurinn og sértæk mál eru hins vegar á borði hvers aðildarfélags.
Einstök aðildarfélög hafa átt fundi með viðsemjendum undanfarna daga og hefur árangurinn af þeim fundum verið misjafn. Góðar fréttir bárust frá Sameyki, sem undirritaði í gær kjarasamning við Faxaflóahafnir. Viðræður Sameykis við aðra viðsemjendur ganga hins vegar verr. Fundur með samninganefnd ríkisins á þriðjudag var tíðindalítill. „Það verður að segjast að þrátt fyrir þessi góðu tíðindi sem greint er frá hér að ofan þá er ekki mikil bjartsýni ríkjandi í okkar herbúðum og undirbúningur fyrir verkfall því í fullum gangi,“ segir í frétt félagsins.
Fundi aflýst hjá bæjarstarfsmannafélögum
Samninganefnd Sjúkraliðafélags Íslands fundaði með samninganefnd ríkisins í gær þar sem kröfur félagsins og viðbrögð sjúkraliða við samningstilboði ríkisins voru rædd. Í færslu á Facebook-síðu félagsins segir að samninganefndin sé „hóflega bjartsýn“ um framgang viðræðnanna. Næsti samningafundur hefur verið boðaður 2. mars.
Fundur bæjarstarfsmannafélaga með samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga, sá fyrsti í rúman mánuð, var afboðaður stuttu áður en hann átti að hefjast á þriðjudag. Ástæðan var sú að samninganefnd Sambandsins hafði ekki unnið heimavinnu sína og því ekkert til að ræða á fundinum, eins og rakið er á Facebook-síðu Kjalar stéttarfélags.
Takist samningar ekki fyrir 9. mars munu aðildarfélög BSRB hefja boðaðar verkfallsaðgerðir. Aðgerðirnar munu hefjast með tveggja daga allsherjarverkfalli 9. og 10. mars. Þann 9. mars munu ákveðnir hópar einnig hefja ótímabundið verkfall til að leggja áherslu á kröfur félaganna.