Leikjaframleiðandinn CCP hefur ákveðið að aflýsa EVE Fanfest, sem fara átti fram í Hörpu í Reykjavík 2.-4. apríl nk., vegna kórónuveirunnar (COVID-19).
Frá þessu er greint í tilkynningu frá CCP.
Skipuleggjendur hátíðarinnar segja í tilkynningu, ákvörðunina erfiða en hún sé nauðsynleg í ljósi aðstæðna.
Hjá ýmsum alþjóðlegum fyrirtækjum séu nú í gildi takmarkanir á lengri ferðalögum starfsmanna. Eftir ítarlega greiningu á áhrifum þessara ráðstafana á skráða þátttakendur á Fanfest, sem og þeirri staðreynd að margir spilarar EVE sem sæki hátíðina komi um langan veg og frá öllum heimshornum, hafi verið ljóst að óhjákvæmilegt væri að hætta við hátíðina í ár. Ákvörðunin hafi verið tekin að vandlega íhuguðu máli.
Í tilkynningu sem CCP hefur sent spilurum EVE Online segir að eflaust muni þessi ákvörðun valda einhverjum þeirra vonbrigðum en þeir muni vonandi sýna aðstæðunum skilning.
Þetta hefði verið í 15. sinn sem EVE Fanfest færi fram. Hátíðin nýtur mikilla vinsælda um heim allan og var búist við um þúsund spilurum alls staðar að úr heiminum hingað til lands.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO hækkaði í dag hættustig vegna veirunnar upp í hæsta stig, en veiran hefur nú greinst í meira en 50 löndum, þar á meðal á Íslandi. Talið er að ríflega 80 þúsund hafi nú verið greind með veiruna, og hafa 2.800 látið lífið, langflestir í Kína.