Fyrsta tilfelli COVID-19 kórónuveiru greinist á Íslandi

Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið færður í einangrun á Landspítala eftir að sýni úr honum reyndist jákvætt fyrir nýju kórónuveirunni, COVID-19.

Kórónaveiran
Auglýsing

Íslenskur karl­maður á fimm­tugs­aldri hefur verið færður í ein­angrun á Land­spít­ala eftir að sýni úr honum reynd­ist jákvætt fyrir nýju kór­ónu­veirunni, COVID-19. Mað­ur­inn er ekki alvar­lega veikur en sýnir dæmi­gerð ein­kenni COVID-19 sjúk­dóms sem eru hósti, hiti og bein­verk­ir. 

Sýna­taka og grein­ing á veiru- og sýkla­fræði­deild Land­spít­ali stað­festi laust eftir kl. 13:00 í dag að mað­ur­inn væri smit­aður af COVID-19 kór­óna­veiru. Þetta er fyrsta stað­festa til­fellið hér á landi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá emb­ætti land­lækn­is.

Auglýsing

Í ljósi þessa mun rík­is­lög­reglu­stjóri í sam­ráði við sótt­varna­lækni virkja hættu­stig almanna­varna. Er þetta gert bæði vegna þess að ekk­ert lát er á hóp­sýk­ingu af völdum veirunnar ytra, þá sér­stak­lega í Evr­ópu, og að fyrsta til­fellið hefur nú verið stað­fest hér á land­i. 

Mað­ur­inn sem greind­ist var nýverið staddur á Norð­ur­-Ítalíu utan skil­greinds hættu­svæðis fyrir veiruna. Unnið er að rakn­ingu smit­leiða en mark­mið þeirra vinnu er að varpa ljósi hverjir gætu verið útsettir vegna þessa stað­festa smits.

­Yfir 82 þús­und manns hafa sýkst af nýju veirunni frá því að hún upp­götv­að­ist fyrst í des­em­ber, lang­flestir í í Kína. Tæp­lega 3.000 hafa lát­ist eða 3,4% sýktra. Sam­­kvæmt John Hop­k­ins hafa um 33.000 manns ­náð sér eftir veik­ind­in. 

Nýja veiran hefur greinst í um fimm­tíu löndum og síð­ustu daga í grann­ríkjum Íslands; Sví­þjóð, Nor­egi og Dan­mörku.

Hvert á að hringja?

Ein­stak­lingar sem finna fyrir veik­indum og hafa mögu­lega verið útsettir fyrir smiti vegna t.d. ferða­laga eru hvattir til að hringja í 1700 (fyrir erlend síma­núm­er: +354 544-4113) til að fá leið­bein­ing­ar. Þeir sem hafa verið í nánu sam­neyti við ein­stak­linga með stað­festa eða lík­lega sýk­ingu verða settir í sótt­kví og hið sama á við um þá sem ferð­ast hafa á und­an­förnum dögum til skil­greindra áhættu­svæða. 

Ítar­legar upp­lýs­ingar um hina nýju kór­óna­veiru er að finna á land­la­ekn­ir.is og jafn­framt upp­lýs­ingar um skil­greind áhættu­svæð­i. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent