Um 90 prósent félagsmanna Eflingar sem greiddu atkvæði um verkföll hjá einkareknum skólum og hjá sveitarfélögum öðrum en Reykjavíkurborg hafa samþykkt vinnustöðvanir í atkvæðagreiðslu. Vinnustöðvanirnar munu að óbreyttu hefjast 9. mars næstkomandi með miklum meirihlutastuðningi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá stéttarfélaginu.
Kjörsókn hjá félagsmönnum hjá sjálfstætt starfandi skólum var 52 prósent, en þar greiddu 152 af 291 félagsmanni á kjörskrá atkvæði. 137 eða 90 prósent voru samþykkir verkfallsboðun, 14 eða 9 prósent mótfallnir og 1 eða 0,66 prósent tóku ekki afstöðu. Um er að ræða samúðarverkfall, samkvæmt Eflingu.
Kjörsókn hjá félagsmönnum hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og Sveitarfélaginu Ölfus var 48 prósent, en þar greiddu 131 af 274 félagsmanni á kjörskrá atkvæði. 114 eða 87 prósent voru samþykkir verkfallsboðun, 14 eða 11 prósent mótfallnir og 3 eða 2 prósent tóku ekki afstöðu.
Af þeim sem tóku afstöðu voru 89 prósent félagsmanna hjá sveitarfélögum hlynntir verkfallsboðun og 91 prósent félagsmanna hjá einkareknu skólunum.
„Þessar niðurstöður sýna hve mikinn vilja fólk hefur til að leggja lóð sitt á vogarskálar í baráttunni fyrir bættum kjörum. Þetta eru hópar sem eru í sambærilegum störfum og félagsmenn okkar í verkfalli gagnvart Reykjavíkurborg. Sömu óbærilega illa launuðu störfin, við óboðlegt álag og aðstæður. Sveitarfélögin og stofnanirnar þar sem börnin okkar og aldraðir foreldrar dvelja eru stærstu láglaunavinnustaðir landsins. Tími breytinga er kominn, engin heiðarleg manneskja getur neitað því lengur,” sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar í tilkynningunni.