Efling býðst til að fresta verkfallsaðgerðum í tvo sólarhringa

Efling hefur boðist til að fresta verkfallsaðgerðum í tvo sólarhringa gegn því að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veiti skriflega staðfestingu á svokölluðu kastljósstilboði.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Dagur B. Eggertsson.
Sólveig Anna Jónsdóttir og Dagur B. Eggertsson.
Auglýsing

Efl­ing hefur boð­ist til að fresta verk­falls­að­gerðum í tvo sól­ar­hringa gegn því að Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri veiti skrif­lega stað­fest­ingu á „Kast­ljós­stil­boð­in­u“. Erindi þessa efnis hefur verið sent til borg­ar­stjóra með afriti á rík­is­sátta­semj­ara.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu í dag. 

„Í Kast­ljósi 19. febr­úar síð­ast­lið­inn ræddi borg­ar­stjóri um 110 þús­und króna grunn­launa­hækkun á samn­ings­tíma fyrir ófag­lærðan Efl­ing­ar­starfs­mann.  Heild­stætt til­boð í þá veru hefur ekki komið fram á samn­inga­fundum þrátt fyrir athuga­semdir og óskir samn­inga­nefndar Efl­ing­ar,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Auglýsing

Enn fremur kemur fram hjá Efl­ingu að með erindi þeirra til borg­ar­stjóra fylgi til­laga að skrif­legu sam­komu­lagi milli samn­ings­að­ila. Í því sé fast­bundið að grunn­laun Efl­ing­ar­fé­laga hækki á bil­inu 100 til 110 þús­und á samn­ings­tím­an­um, mest hjá lægst laun­uðum og minnst hjá þeim hæst laun­uðu.

 Verk­falli yrði frestað mið­viku­dag og fimmtu­dag

Í sam­komu­lag­inu segir að með þessu hafi sátt náðst um grunn­launa­hækk­anir á samn­ings­tím­anum og þá sé hægt að hefja vinnu við að ná saman um önnur atriði. Sam­komu­lagið taki ein­göngu til grunn­launa en ekki ann­arra atriða, svo sem álaga, sér­greiðslna og upp­bóta. 

Verk­falli yrði frestað í tvo sól­ar­hringa, frá því klukkan 00:01 á mið­viku­dag til klukkan 23:59 á fimmtu­dag næst­kom­andi.

Frestur til klukkan fjögur í dag 

Erindið var sent til  borg­ar­stjóra klukkan 11:00 og er gef­inn frestur til svars til klukkan 16:00 í dag, 3. mars.

„Þetta sam­komu­lag myndi stað­festa það sem borg­ar­stjóri hefur sjálfur lagt fram í umræð­unni, það er að segja að Efl­ing­ar­fé­lögum á lægstu launum standi til boða 20 þús­und grunn­launa­hækkun umfram Lífs­kjara­samn­ing­inn. Við höfum sagt að slíkt til­boð myndi færa okkur í sam­komu­lags­átt og viljum með þessu sýna að okkur er alvara með því. Við göngum út frá því að borg­ar­stjóra hafi líka verið alvara og sé til­bú­inn að sýna það í verki. Svo verður að koma í ljós hvernig gengur að ná saman um önnur atrið­i,“ segir Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, í til­kynn­ing­unn­i. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent