Skeljungur hefur fest kaup á þjónustumiðstöðinni Baulunni í Borgarfirði. Í kaupunum felst allur fasteignar- og lóðarréttur ásamt verslunarrekstri á svæðinu þar sem verslunin er til húsa.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skeljungi í dag.
Fyrirhugað er að bensínstöð Orkunnar verði opnuð á svæðinu á komandi mánuðum og rekstur veitingasölunnar verði efldur, samkvæmt fyrirtækinu.
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs, segir í tilkynningunni að þau séu full tilhlökkunar að taka við rekstri hinnar víðfrægu Baulu í Borgarfirði. „Er þetta áframhaldandi skref í að framfylgja stefnu okkar um að þétta stöðvanetið og efla þjónustuna enn betur við íbúa landsbyggðarinnar,“ segir hann.
Sérkennileg bygging með turni
Þann 22. maí árið 1986 kom fram í Morgunblaðinu að ný þjónustumiðstöð væri að rísa í Borgarfirði. Í fréttinni sagði að byggingin væri sérkennileg í útliti og að upp úr henni skagaði turn sem minnti mjög á eitthvert frægasta fjall Borgarfjarðar, Baulu.
Einnig kom fram að það væru hjónin á Haugum í Stafholtstungum, Vildís Guðmundsdóttir og Halldór Haraldsson, sem væru að byggja en Richard Ó. Briem hefði teiknað húsið og að yfirsmiður væri Stefán Ólafsson.