Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað sérfræðinga í fjármálastöðugleikanefnd sem tekur til starfa á þessu ári í samræmi við ný lög um Seðlabanka Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Seðlabanka Íslands í dag.
Samkvæmt lögum skipar ráðherra þrjá sérfræðinga í málefnum fjármálamarkaðar eða hagfræði og hefur hann skipað þau Axel Hall, Bryndísi Ásbjarnardóttur og Guðmund Kristján Tómasson í nefndina. Ásamt þeim eiga þrír varaseðlabankastjórar sæti í nefndinni auk seðlabankastjóra sem er formaður, samkvæmt tilkynningunni.
Skipuð til fimm ára
„Verkefni fjármálastöðugleikanefndar eru talin upp í 13. grein laga um Seðlabankann. Þar segir m.a. að verkefni nefndarinnar séu að leggja mat á ástand og horfur í fjármálakerfinu, fjalla um og skilgreina nauðsynlegar aðgerðir og samþykkja stjórnvaldsfyrirmæli. Nefndarmenn eru skipaðir til fimm ára og skal nefndin funda að minnsta kosti fjórum sinnum á ári,“ segir í tilkynningu Seðlabankans.