Aðalsteinn Kjartansson, Helgi Seljan og Stefán Drengsson dagskrárgerðarmenn fréttaskýringaþáttarins Kveiks á RÚV og Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður á Stundinni unnu Blaðamannaverðlaun ársins 2019 fyrir rannsóknarblaðamennsku rétt í þessu. Verðlaunin voru afhent í félagsheimili blaðamanna í Síðumúla 23 í dag.
Verðlaunin fengu þeir fyrir umfjöllun um Samherjamálið. „Fá mál vöktu meiri athygli í íslensku samfélagi en umfjöllun Kveiks og Stundarinnar í samvinnu við Al Jazeera og Wikileaks um ásakanir á hendur Samherja um mútugreiðslur í tengslum við starfsemi fyrirtækisins í Namibíu. Umfjöllunin byggði staðhæfingum fyrrum starfsmanns Samherja í Namibíu og miklu magni gagna sem einnig voru gerð aðgengileg almenningi á netinu samhliða birtingu frétta af málinu. Umfjöllunin hefur haft mikil áhrif, bæði hér heima og erlendis,“ sagði í rökstuðningi dómnefndar þegar tilkynnt var um tilnefningar.
Arnar Páll Hauksson á Speglinum á RÚV vann Blaðamannaverðlaun ársins 2019 fyrir umfjöllun um kjaramál. „Arnar Páll hefur af djúpri þekkingu og áralangri yfirsýn fjallað um kjaramál með afar vönduðum hætti í ótal fréttum og fréttaskýringum á tímum mikils umróts á vinnumarkaði. Hann hefur fjallað ítarlega um hugmyndir og tillögur sem lagðar hafa verið fram í kjaraviðræðum og flytur iðulega fyrstu fréttir af þróun mála,“ sagði í umsögn dómnefndar.
Alma Mjöll Ólafsdóttir, Jóhann Páll Jóhannsson, Margrét Marteinsdóttir, og Steindór Grétar Jónsson á Stundinni unnu fyrir bestu umfjöllun ársins um hamfarahlýnun. Í rökstuðningi dómnefndar fyrir tilnefningu kom fram að um yfirgripsmikla og vandaða umfjöllun væri að ræða þar sem blaðamenn Stundarinnar fjalla um fyrirséðar afleiðingar og birtingarmyndir loftslagsvár hér á landi og víðar, aðgerðir stjórnvalda og viðleitni einstaklinga til þess að vega upp á móti skaðlegum umhverfisáhrifum sem stafað geta af daglegu lífi fólks.
Erla Björg Gunnarsdóttir, Nadine Guðrún Yaghi, og Jóhann K. Jóhannsson, Kompási, Fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar unnu fyrir viðtal ársins og umfjöllun um barn sem var lokað inni á heimili með geðveikri móður. „Vandað viðtal við 17 ára stúlku, Margréti Lillý Einarsdóttur, sem lýsir því hvernig samfélagið brást henni þegar hún á grunnskólaaldri ólst upp ein hjá móður sem átti við bæði geðrænan vanda og fíknivanda að stríða. Viðtalið vakti verðskuldaða athygli og var fylgt eftir með fjölda frétta um stöðu barna í viðkvæmri stöðu, starfsemi barnaverndarnefnda og fleiri þætti og leiddi meðal annars til þess að bæjarstjóri Seltjarnarness baðst formlega afsökunar á því hvernig staðið var að málum í tilviki Margrétar Lillýar,“ sagði í umsögn dómnefndar.