Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands fyrir hönd átján aðildarfélaga sinna skrifaði í dag undir nýjan kjarasamning við samninganefnd ríkisins með fyrirvara um samþykki félagsmanna í atkvæðagreiðslu. Samningurinn gildir frá 1. apríl í fyrra til 31. mars 2023.
Í tilkynningu kemur fram að helstu atriði samningsins séu eftirfarandi:
- Laun hækka í samræmi við lífskjarasamninginn og hækka frá 1. apríl 2019.
- Lágmarksorlof hjá öllum starfsmönnum verður 30 dagar.
- Markviss skref til styttingar vinnuvikunnar. Frá 1. janúar 2021 styttist vinnuvikan um samtals 65 mínútur fyrir fólk í fullu starfi.
- Vinnuvika vaktavikufólks verður 36 stundir miðað við fullt starf og nýtt launamyndunarkerfi tekið upp. Breytingar á fyrirkomulagi vaktavinnu sem býður upp á manneskjulegra umhverfi með styttri vinnuviku, þar sem miðað er að bættri heilsu, auknu öryggi og betri samþættingu einkalífs og vinnu.
- Tekin er upp ný launatafla sem byggir á álagsþrepum en ekki aldurþrepum, í tengslum við það eru stofnannasamningar endurskoðaðir og er ráðstafað allt að 142 milljónum króna vegna þessa.
- Framlag í orlofssjóð hækkar.
- Fellt út ákvæði um að heimilt sé að láta fólk gista í tjöldum.
- Persónuuppbót sem greiðist 1. maí ár hvert og nemur 50.450 kr. fyrir fullt starf árið 2020. Desemberuppbót hækkar úr 115.850 kr. árið 2019 í 124.750 kr. árið 2022. Tekið er upp nýtt ákvæði að félagsmenn sem starfað hafa samfellt í 3 ár geta fengið launað leyfi í samtals í þrjá mánuði til að stunda viðurkennt starfsnám.
Samningurinn verður kynntur félagsmönnum á næstu dögum og vikum en gert er ráð fyrir að atkvæðagreiðslu um hann ljúki 26. mars.
Starfsgreinasambandið undirritaði kjarasamning við sveitarfélög landsins 16. janúar síðastliðinn. Sá samningur var samþykktur með miklum meirihluta félagsmanna þeirra aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins sem um hann kusu, eða 80,6 prósent greiddra atkvæða.