Samkvæmt breyttu skipulagi á framkvæmdastjórn Marel verður framkvæmdastjórum félagsins fækkað úr tólf í níu. Tvær konur hafa verið skipaðir nýir framkvæmdastjórar, Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir og Anna Kristín Pálsdóttir.
Guðbjörg Heiða verður framkvæmdastjóri fiskiðnaðar Marel og tekur við starfinu af Sigurði Ólasyni sem hættir störfum. Hún hefur starfað hjá Marel frá árinu 2011 og hefur síðustu ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra Marel á Íslandi. Anna Kristín hefur verið skipuð framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar.. Hún tekur við starfinu af Viðari Erlingssyni sem tekur við nýju hlutverki hjá Marel. Í tilkynningu segir að Anna Kristín hafi gengið til liðs við Marel árið 2015 „og hefur hún hlotið hraðan framgang og gegnt ýmsum leiðtogastöðum í vöruþróun.“
Marel er stærsta fyrirtækið sem skráð er í kauphöllina á Íslandi. Það er auk þess skráð á markað í Amsterdam. Fyrirtækið er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Það velti um 1,3 milljörðum evra í fyrra og hjá því starfa yfir 6300 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi.
Ég vil þakka þeim sem frá eru að hverfa úr framkvæmdastjórn fyrir mikilvægt framlag sitt til Marel í gegnum árin og óska þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi. Við bjóðum Guðbjörgu Heiðu Guðmundsdóttur og Önnu Kristínu Pálsdóttur velkomnar í framkvæmdastjórn Marel. Þær hafa báðar sýnt framúrskarandi leiðtogahæfileika í fyrri störfum sínum innan Marel. Fjölbreytt og reynslumikil framkvæmdastjórn félagsins er vel í stakk búin til að leiða Marel á þeirri vegferð að umbylta matvælavinnslu.“
Í tilkynningunni segir enn fremur að eftirfarandi breytingar verði á skipulagi sviða:
Ulrika Lindberg, framkvæmdastjóri alþjóðamarkaða og þjónustu, mun leiða sameinað svið alþjóðamarkaða og alþjóðlegrar þjónustu. Einar Einarsson, sem áður gegndi stöðu framkvæmdastjóra alþjóðamarkaða lætur af störfum sem framkvæmdastjóri og stígur úr framkvæmdastjórn. Hann mun taka við sínu fyrra starfi sem framkvæmdastjóri Marel í Bandaríkjunum. Einar hefur undanfarin tvö ár í starfi sínu sem framkvæmdastjóri alþjóðamarkaða náð miklum árangri við að innleiða nýtt skipulag og forystu í S-Ameríku og Kína, en nýtt skipulag verður jafnframt innleitt á öðrum markaðssvæðum Marel. Aukin áhersla er á þjónustu við lykilviðskiptavini í gegnum allan líftíma tækjabúnaðar. Stefnt er að aukinni fjárfestingu í framlínu félagsins í sölu og þjónustu til viðskiptavina til að styðja við frekari vöxt í sölu, sem og hagræðingu í framleiðslu og stoðsviðum.
Árni Sigurðsson verður framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga. Stefnumarkandi rekstrareiningar Marel ná yfir hugbúnað, frekari vinnslu og tilbúin matvæli. Marel fjárfestir á þessum sviðum til að styðja við og auka vöxt í gegnum þrjá iðnaði Marel; kjúkling, kjöt og fisk. Jesper Hjortshøj sem áður gegndi stöðu framkvæmdastjóra fullvinnslu stígur úr framkvæmdastjórn og verður yfirmaður tilbúinna matvæla, sem áður kallaðist fullvinnsla, þar sem stefnt verður að frekari vexti á ýmsum mörkuðum, meðal annars fyrir óhefðbundin prótein og ferskar neytendavörur.
Linda Jónsdóttir, fjármálastjóri, tekur nú við framkvæmdastjórn mannauðsmála til viðbótar við fjármál og upplýsingatækni. Davíð Freyr Oddsson sem áður gegndi stöðu framkvæmdastjóra mannauðsmála fer úr framkvæmdastjórn en mun áfram bera ábyrgð á mannauðsmálum félagsins sem yfirmaður mannauðs og menningar og mun heyra undir Lindu Jónsdóttur fjármálastjóra.