Íslensk stjórnvöld komu á framfæri í morgun hörðum mótmælum við aðgerðum sem bandarísk stjórnvöld kynntu í gærkvöldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu í dag.
Aðgerðirnar fela í sér komubann ferðamanna sem dvalið hafa í Schengen-ríkjum og munu geta haft alvarleg áhrif á Íslandi, einkum fyrir ferðaþjónustu.
Samkvæmt ráðuneytinu átti Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í morgun samtal við sendiherra Bandaríkjanna, og í kjölfarið fund með staðgengli hans, til þess að koma mótmælum á framfæri.
„Ráðherra hefur í þessum samtölum við bandarísk stjórnvöld lagt á það ríka áherslu að Ísland verði undanþegið ákvæðunum í ljósi landfræðilegrar sérstöðu sinnar og víðtækra aðgerða sem íslensk stjórnvöld hafa gripið til til að hefta útbreiðslu COVID-19 hér á landi,“ segir í tilkynningunni.
Þá hefur Guðlaugur Þór óskað eftir fundi í utanríkismálanefnd við fyrsta tækifæri til að ræða þá stöðu sem upp er komin.