Átján manns sóttu um starf borgarritara en Reykjavíkurborg auglýsti þann 14. febrúar síðastliðinn starfið laust til umsóknar. Umsóknarfrestur var til og með 16.mars síðastliðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Stefán Eiríksson, fyrrverandi borgarritari, sagði upp störfum fyrr á árinu en hann var ráðinn sem útvarpsstjóri og tók við því starfi þann 1. mars síðastliðinn.
Umsækjendur um starf borgarritara eru:
- Artis Arturs Freimanis – Vélstjóri
- Árdís Rut Hlífardótir – Framkvæmdastjóri
- Birna Ágústsdóttir – Skrifstofustjóri
- Elín Björg Ragnarsdóttir – Verkefnastjóri
- Friðjón Már Guðjónsson – Bókhaldsfulltrúi
- Guðbjörg Ómarsdóttir – Gæðastjóri
- Gunnsteinn R. Ómarsson – Lánastjóri
- Hans Benjamínsson – Aðstoðarmaður framkvæmdastjóra
- Jón Þór Sturluson – Dósent
- Jónas Skúlason – Skrifstofustjóri
- Kristín Þorsteinsdóttir – MBA
- Margrét Hallgrímsdóttir – Þjóðminjavörður
- Óli Örn Eiríksson – Deildarstjóri
- Ólöf Hildur Gísladóttir – Lögfræðingur
- Salvör Sigríður Jónsdóttir – Félagsliði
- Sólveig Dagmar Þórisdóttir – Framkvæmdastjóri
- Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir – Lögfræðingur
- Þorsteinn Gunnarsson – Sveitarstjóri
Í tilkynningunni segir að nú fari í gang ráðningarferli sem Intellecta haldi utan um í samvinnu við hæfnisnefnd sem borgarráð skipaði. Hæfnisnefndin er skipuð í samræmi við reglur um ráðningu borgarráðs í æðstu stjórnendastöður hjá Reykjavíkurborgar, sem eru frá 24. janúar 2019.
Hæfnisnefndina skipa Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sem jafnframt er formaður, Ásta Bjarnadóttir, mannauðsstjóri Landspítalans og Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands.