Róbert Marshall hefur verið ráðinn til þriggja mánaða í stöðu upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar. Hann verður með aðsetur í forsætisráðuneytinu og hefur störf 1. apríl næstkomandi.
Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins í dag.
„Róbert er fyrrverandi alþingismaður en hefur starfað við fjallaleiðsögn, þjálfun og útivist undanfarin ár. Hann starfaði við fjölmiðla um árabil og var aðstoðarmaður samgönguráðherra áður en hann settist á þing árið 2009. Róbert er fyrrverandi formaður Blaðamannafélags Íslands og var um tíma forstöðumaður fréttasviðs 365. Hann stundaði fiskvinnslu, netagerð og sjómennsku í Vestmannaeyjum og er stúdent frá framhaldsskólanum þar,“ segir í tilkynningu stjórnvalda.
Þá kemur fram að á þingi hafi hann meðal annars gegnt þingflokksformennsku, formennsku í allsherjarnefnd, formennsku í Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og setið í umhverfis- og samgöngunefnd, Þingvallanefnd og Norðurlandaráði.