Samninganefnd Eflingar hefur ákveðið að fresta verkfallsaðgerðum sem staðið hafa yfir hjá félagsmönnum sem starfa hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og Sveitarfélaginu Ölfus.
Verkfallið, sem staðið hefur yfir yfir frá 9. mars, mun því hætta tímabundið frá og með morgundeginum, 25. mars 2020. Félagsmönnum Eflingar hjá umræddum sveitarfélögum er því heimilað að ganga til reglubundinna starfa samkvæmt ráðningarsamningum frá og með klukkan 00:01 á morgun.
Í yfirlýsingu frá samninganefnd Eflingar gagnvart ofangreindum sveitarfélög segir að COVID-19 faraldurinn hafi leitt til mikillar óvissu á öllum sviðum samfélagsins, meðal annars í starfsemi stofnana þar sem félagsmenn Eflingar vinna. „Í því ástandi teljum við skynsamlegast að fresta verkfallsaðgerðum þangað til faraldurinn er liðinn hjá. Við höfum átt samráð við okkar félagsmenn um þessa ákvörðun og tökum hana með stuðningi þeirra.
Við munum aldrei taka annað í mál en að félagar okkar hjá Kópavogi, Seltjarnesbæ og víðar fái kjarabætur sambærilegar þeim sem var í kjarasamningum Eflingar við ríkið og Reykjavíkurborg. Við erum tilbúin að hefja verkfallsaðgerðir af krafti á nýjan leik þegar faraldurinn hefur gengið yfir og það er eindregin stuðningur meðal félagsmanna okkar fyrir því. Þá höfum við móttekið afgerandi samstöðuyfirlýsingu frá félögum okkar hjá Reykjavíkurborg. Við erum því reiðubúin að mæta fílefld í verkfallsaðgerðir innan nokkurra vikna, mögulega í umfangsmeiri og beittari mynd en hingað til.“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að félagsmennirnir vinni flestir við grunnþjónustu og umönnun og þeir skilji mjög vel hvað veirufaldurinn þýði fyrir samfélagið. „Þeir hafa sýnt mikla ábyrgð vegna faraldursins, til dæmis með því að veita rúmar verkfallsundanþágur. Sveitarfélögin hafa hins vegar kosið að nýta sér faraldurinn á einstaklega ómerkilegan hátt til að hamla eðlilegum framgangi viðræðna. Skömm Sambands íslenskra sveitarfélaga er mikil. Ósvífni þeirra breytir því þó ekki að félagsmenn okkar hjá Kópavogi og hinum sveitarfélögunum munu fá sínar eðlilegu kjarabætur.“