Smitum fjölgað um tæplega 90 á einum sólarhring

Staðfest smit af kórónuveirunni eru nú orðin 737 hér á landi. Í gær voru þau 648 og hefur þeim því fjölgað um 89 á einum sólarhring. Flest smitin eru svokölluð innanlandssmit. Smit af óþekktum uppruna eru 194.

Yfirvofandi skortur er á sýnatökupinnum hér á landi.
Yfirvofandi skortur er á sýnatökupinnum hér á landi.
Auglýsing

Stað­fest smit af kór­ónu­veirunni eru nú orðin 737 hér á landi. Í gær voru þau 648 og hefur þeim því fjölgað um 89 á einum sól­ar­hring. Í dag eru 9.013 manns í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 8.205.

Tæp­lega 2.200 manns hafa lokið sótt­kví.

Nú liggja 11 á sjúkra­húsi vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins. Á síð­unni Covid.is kemur fram að 56 hafi náð sér af sjúk­dómn­um. Flest smitin eru svokölluð inn­an­lands­smit. Smit af óþekkt­u­m ­upp­runa eru 194.

Nú hafa flest smit greinst í ald­urs­hópnum 40-49 ára eða 182. Hjá hópnum 50-59 ára hafa 136 smit verið greind og 128 hjá fólki á aldr­in­um 30-39 ára. 

Fleiri sýna­tökur í gær en fyrra­dag

Í dag hafa 11.727 sýni verið tekin frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Síð­asta sól­ar­hring­inn voru 967 sýni tek­in, 460 hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og 507 hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans.

Færri sýni hafa verið tekin síð­ustu daga vegna yfir­vof­and­i skorts á sýna­tökupinnum sem nauð­syn­legir eru til rann­sókn­anna. Sýna­tökupinn­ar ­sem stoð­tækja­fyr­ir­tækið Össur á á lager og til skoð­unar var að nota við ­sýna­tökur vegna nýju kór­ónu­veirunnar reynd­ust ekki upp­fylla örygg­is­kil­yrði.

Enn er því beðið eftir send­ingu af pinnum að utan.

Auglýsing

Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir hefur varað við því að draga of miklar álykt­anir af tölum smita dag frá degi. Á mánu­dag greindust t.d. aðeins 20 smit. Í dag eru  þau tæp­lega nítíu. Fleiri sýni voru tekin í dag en þrjá dag­ana þar á undan og nú er Íslensk erfða­grein­ing aftur farin að taka sýni. Aðeins eitt smit greind­ist þar af um 460 sýnum sem voru tekin í gær og morg­un.

Ýmis­legt getur skýrt sveiflu í stað­festum smitum milli daga, m.a. fjöldi sýna­taka. Þá getur fámennið og mögu­leg hópsmit einnig haft áhrif á töl­urn­ar. 

Þórólfur hefur á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna und­an­farið sagt að far­ald­ur­inn sé í vexti og að það hafi verið við­búið á þessum tíma­punkti.

­Sam­kvæmt spálík­ani sem upp­fært var í fyrra­dag er búist er við því að fyrir lok apríl hafi lík­lega um 2.500 manns á Íslandi verið greindir með­ COVID-19, en talan gæti náð tæp­lega 6.000 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.

Af þeim sem greinst hafa með Covid-19 á Íslandi eru tvö­ lát­in. Á mánu­dag lést rúm­lega sjö­tug kona á Land­spít­al­an­um. Hún hafð­i und­ir­liggj­andi sjúk­dóm. Konan er fyrsti Íslend­ing­ur­inn sem deyr úr COVID-19. ­Fyrir rúmri viku lést ástr­alskur ferða­maður á heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands á Húsa­vík. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent