Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið að auka við hlutafé Isavia ohf. um fjóra milljarða króna með því skilyrði að félagið ráðist í innviðaverkefni á Keflavíkurflugvelli strax á þessu ári. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins í dag en málið var rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Samkvæmt tilkynningunni er annars vegar um að ræða verkefni sem fyrirhuguð voru á yfirstandandi ári en hefði þurft að fresta vegna þess tekjufalls sem félagið hefur orðið fyrir og hins vegar flýtingu á öðrum mannaflafrekum framkvæmdum sem fyrirhugaðar voru á árunum eftir 2023.
Áætlaður fjöldi nýrra starfa sem verður til við þessar framkvæmdir nemur um 50 til 125 störfum fyrir hvern mánuð fram á mitt ár 2021, samkvæmt ráðuneytinu. Þá muni verða til fjöldi afleiddra verkefna á Suðurnesjunum sem tengjast umfangsmiklum framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli.
Í tilkynningunni segir að ákvörðunin sé í samræmi við aðgerðir stjórnvalda við að auka við fjárfestingar til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu með arðbærum fjárfestingum sem auka eftirspurn eftir vinnuafli.
Svartasta spá um atvinnuleysi raungerist
Bjarni segir að síðustu daga „höfum við séð okkar svörtustu spá um atvinnuleysi raungerast sem kallar á hraða en jafnframt upplýsta ákvarðanatöku.“ Isavia hafi síðustu árin unnið mikla undirbúningsvinnu hvað varðar framtíðaruppbyggingu á Keflavíkurflugvelli sem muni styðja við millilandaflug til og frá Íslandi til framtíðar. Það sé skynsamlegt að halda áfram framkvæmdum á flugvellinum til að standa vörð um samkeppnishæfni Íslands þegar kemur að ferðamennsku. „Þess vegna höfum við tekið ákvörðun um að leggja félaginu til aukið hlutafé til að það fái svigrúm til að ráðast í verkefni sem hefði að öðrum kosti verið frestað í ljósi aðstæðna,“ segir ráðherrann.
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, segir í tilkynningunni að ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að styðja við félagið geri þeim kleift að fara í verkefni sem þau hefðu annars ekki haft svigrúm til á þessari stundu.
„Hún býr ekki eingöngu til ný störf í framkvæmdunum sjálfum heldur getum við vegna hennar staðið vörð um fjölda starfa innan Isavia. Innspýtingin mun einnig hafa jákvæð áhrif á Suðurnesjunum því margir sem þar búa starfa hjá okkur auk þess að til verður fjöldi afleiddra verkefna á svæðinu. Þetta er afar mikilvægt fyrir Isavia því það mun hjálpa okkur við að koma sterkari út úr þessum erfiðu tímum og gera flugvöllinn enn samkeppnishæfari til framtíðar,“ segir Sveinbjörn.
Þá kemur fram hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu að af þessum 4 milljörðum króna fari um helmingur til verkefna sem tengjast hönnun og það sem eftir stendur verði nýtt í framkvæmdir. Miðað sé við að viðbótarfjármögnunin muni nýtast breiðum hópi fyrirtækja.
Þá muni þessi aðgerð opna fyrir möguleika á frekari framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli, fyrr en ella, upp á ríflega þrjá milljarða króna. Heildarumfang fjárfestinga sem tengjast þessari hlutafjáraukningu geti því numið ríflega 7 milljörðum króna yfir tveggja ára tímabil.