Landspítalinn fékk 17 öndunarvélar frá 14 íslenskum fyrirtækjum

Nokkur íslensk fyrirtæki, sem vilja ekki láta nafns síns getið, hafa gefið Landspítalanum fullkomnar öndunarvélar og ýmsan annan búnað. Með því vilja þau leggja sitt að mörkum við að styðja við íslenskt heilbrigðiskerfi á erfiðum tímum.

Páll Matthíasson Blaðamannafundur Mynd: Lögreglan
Auglýsing

„Nú í morgun barst óvenju­stór gjöf með frakt­flug­vél að utan þegar Land­spít­al­inn fékk 17 nýjar og mjög full­komnar gjör­gæslu­önd­un­ar­vélar að gjöf. Þýskar Heyer Med­ical-­vél­ar.“ Þetta sagði Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. 

Að gjöf­inni standa 14 íslensk fyr­ir­tæki og Páll sagði að með henni vildu fyr­ir­tækin leggja sitt að mörkum við að styðja við íslenskt heil­brigð­is­kerfi á erf­iðum tím­um. „En fyr­ir­tækin sem standa að gjöf­inni þau kjósa að láta nafns síns ekki get­ið.“

Til við­bótar keyptu fyr­ir­tækin 14 umtals­vert magn af sér­stökum hlífð­ar­fatn­aði og ýmsar lækn­inga­vörur fyrir starfs­fólk heil­brigð­is­kerf­is­ins. „Um er að ræða 6.500 svo­kall­aðar N95-­sótt­varn­ar­grím­ur, þús­und varn­ar­gall­ar, 2.500 varn­ar­gler­augu og 140 þús­und veir­up­inna. Það þarf ekki að fjöl­yrða um mik­il­vægi þess­ar­ara bún­aðar alls,“ sagði Páll.

Auglýsing
Í máli hans kom fram að þegar er búið að afhenda 11 önd­un­ar­vélar en sex verða afhentar í næstu viku. Hann minnti á að Land­spít­al­inn væri birgð­ar­stöð fyrir öll sjúkra­húsin á lands­byggð­inni og því væri mik­il­vægt að leggja áherslu á að gjöfin nýt­ist land­inu öllu. 

Hann sagði að þrot­laus vinna, útsjón­ar­semi og harð­fylgi lægi að baki því að koma þessum bún­aði til lands­ins enda væru öll ríki heims í kapp­hlaupi um þessar vörur um þessar mund­ir. Öll sú vinna hafi verið unnin í sam­vinnu við Land­spít­al­ann og gerð til að mæta þörfum hans. „Gjöfin er einkar vel tíma­sett og snýst um búnað sem munar mikið um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent