„Í öllum kreppum felast nýir möguleikar“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að í næstu aðgerðum stjórnvalda þurfi að horfa til lítilla fyrirtækja, einyrkja og námsmanna. Hún segir Íslendinga eina ekki geta ráðið því hvaða heimsmynd blasi við þegar faraldurinn verður liðinn hjá.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir gaf munn­lega skýrslu vegna COVID-19 far­ald­urs­ins og við­bragða stjórn­valda við upp­haf þing­fundar í dag og fór þar yfir þær aðgerðir sem næstar eru á dag­skrá hjá stjórn­völd­um. Hún­ ­sagði að stjórn­völd gerðu nú ráð fyrir því að fram­lengja hluta­bóta­leið­ina, en að rík­is­stjórnin gerði ráð fyrir því að gera hugs­an­lega ein­hverjar breyt­ingar á henni, „út frá þeirri reynslu sem komin er á leið­ina“. 

„Upp­haf­lega mark­miðið var að þessi leið væri fyrir launa­fólk í land­inu, fyrst og fremst, til þess að tryggja afkomu launa­fólks og þess vegna var hún mjög opin og sam­þykkt mjög opin hér á Alþingi. Þetta þarf að meta núna þegar við skoðum fram­kvæmd leið­ar­inn­ar,“ sagði Katrín.

For­sæt­is­ráð­herra sagði einnig að það stytt­ist í að við færum að sjá fram­kvæmd brú­ar­lána með rík­is­á­byrgð, en hún sagði að Seðla­bank­inn og ríkið væru við það að ná samn­ingum um fram­kvæmd­ina, ef samn­ingar hefðu þá ekki þegar náðst fyrr í dag.

Katrín sagð­ist einnig ánægð með sam­stöð­una í sam­fé­lag­inu, en fór líka fram á það að sjö fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi drægju millj­arða­kröfur sínar á hendur rík­inu vegna mak­rílút­hlut­anna til baka og sýndu með því ábyrgð.

Lítil fyr­ir­tæki, ein­yrkjar og náms­menn

Hún sagði að það blasti við að rík­is­stjórnin þyrfti að kynna frek­ari aðgerðir til skemmri tíma til að hjálpa litlum fyr­ir­tækjum sem hefðu þurft að loka vegna sótt­varna­ráð­staf­ana, ein­yrkjum sem ekki gætu sinnt vinnu sinni og náms­mönn­um, sem margir hverjir hafa ekki fengið sum­ar­störf.

Auglýsing

Hún sagði einnig að þegar far­ald­ur­inn væri lið­inn hjá myndi ný heims­mynd blasa við, sem erfitt væri að sjá fyrir sér á þessum tíma­punkt­i. „Sumt munum við ekki ráða við, um það hvernig málin þróast, en við getum ráðið við ansi margt. Eins og ég hef ítrekað sagt stendur íslenskt sam­fé­lag vel til þess að takast á við þennan far­ald­ur,“ sagði Katrín og nefndi sterka stöðu rík­is­fjár­mál­anna, lágt vaxta­stig og sam­fé­lags­legar stoðir eins og skóla­kerfið og heil­brigð­is­starf­ið. 

„Í öllum kreppum fel­ast nýir mögu­leik­ar. Við höfum tæki­færi til að byggja hér upp á sviði nýsköp­un­ar, rann­sókna og þró­un­ar,“ sagði Katrín og bætti við að mögu­lega myndi far­ald­ur­inn virka eins og „hrað­all fyrir fjórðu iðn­bylt­ing­una“ þar sem vænt­an­legar breyt­ingar myndu ganga yfir hrað­ar.

Þá hefði far­ald­ur­inn minnt á það hversu hátt hlut­fall mat­væla á Íslandi væri inn­flutt. „Getum við ekki gert betur í því að fram­leiða aukið hlufall okkar mat­væla hér heima, og vera þannig öðrum minna háð um inn­flutn­ing mat­væla?“ spurði for­sæt­is­ráð­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent