Forsvarsmenn sex einkarekinna fjölmiðlafyrirtækja sem starfrækja fréttaritstjórnir sendu nýverið áskorun á á Lilju D. Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, og Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Í bréfinu, sem forsvarsmenn Kjarnans, Sýnar, Árvakurs, Torgs, Stundarinnar og Birtings skrifuðu undir, var skorað á ráðherranna tvo að beita sér fyrir því að styrkja rekstrargrundvöll einkarekinna fjölmiðla svo þeir hafi möguleika á að standa af sér tekjutap vegna samdráttar í samfélaginu.
Bréfið í heild má lesa hér að neðan:
Áskorun um aðgerðir
Rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla hefur verið óhagstætt og óheilbrigt undanfarin ár. Við því átti að bregðast með aðgerðum sem kynntar voru í frumvarpi menntamálaráðherra til breytinga á lögum um fjölmiðla sem nú ríkir óvissa um eftir að starfsáætlun þingsins var lögð til hliðar. Í því er lagt til að einkareknir fjölmiðlar fái tímabundinn stuðning í formi endurgreiðslu á hluta kostnaðar sem fellur til við að afla og miðla fréttum, fréttatengdu efni og umfjöllun um samfélagsleg málefni hér á landi, eins og það er orðað í frumvarpinu.
Breytingar á lögum um fjölmiðla höfðu þann tilgang að treysta rekstrargrundvöll einkarekinna fjölmiðla, miðað við þá stöðu sem var uppi þegar frumvarpið var fyrst kynnt, í lok árs 2019. Nú, þegar komið er nálægt páskum árið 2020, hefur staða miðlanna versnað enn frekar. Mikilvægi fjölmiðla hefur þó sjaldan verið meira í því ástandi sem skapast hefur. Sterkir fjölmiðlar eru sérstaklega mikilvægir samfélaginu núna, bæði vegna viðurkennds almannavarnahlutverks og vegna aðhalds- og umræðuhlutverks þeirra á tímum hraðra lagabreytinga og fordæmalauss inngrips yfirvalda hér og annars staðar.
Við, undirrituð, skorum á stjórnvöld að grípa til aðgerða þegar í stað til að styrkja rekstrargrundvöll einkarekinna fjölmiðla svo þeir hafi möguleika á að standa af sér það tekjutap sem fram undan er vegna samdráttar í efnahagslífinu.
Við köllum eftir því að gripið verði til sérstakra aðgerða til að styðja við fjölmiðla. Víðtækir erfiðleikar í hagkerfinu kalla á að ekki einungis verði gripið til aðgerða til stuðnings fjölmiðlum byggðum á fyrirliggjandi ósamþykktu frumvarpi, sem gildir fyrir rekstrarárið 2019, heldur að ríkisstjórnin beiti sér fyrir frekari aðgerðum, sem gætu verið tímabundnar, til að styðja einkarekna fjölmiðla í að mæta þeim vanda sem steðjar nú að vegna heimsfaraldurs.
Virðingarfyllst,
Eyrún Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Kjarnans miðla
Haraldur Johannessen, framkvæmdastjóri Árvakurs
Jóhanna Helga Viðarsdóttir, forstjóri Torgs
Jón Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri Stundarinnar
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Birtíngs útgáfufélags
Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjölmiðla Stöðvar 2 og Vodafone (Sýn)