Ísland heldur áfram að falla á lista yfir fjölmiðlafrelsi

Hin Norðurlöndin raða sér í fjögur efstu sætin á lista yfir þau lönd þar sem mest fjölmiðlafrelsi ríkir. Ísland hefur fallið hægt og bítandi niður listann á undanförnum árum og er nú í 15. sæti.

bessastaðir
Auglýsing

Ísland fellur um eitt sæti milli ára á lista Reporters wit­hout boarders, eða Blaða­­manna án landamæra, um fjöl­miðla­frelsi. Ísland er nú í 15. sæti á list­anum en var í sæti 14 í fyrra. 

Nor­egur skipar efsta sæt­ið, Finn­land er í öðru sæti, Dan­mörk í því þriðja og Sví­þjóð í fjórða sæti. Í fyrra voru Nor­egur og Finn­land í sömu sætum en Sví­þjóð í þriðja og Dan­mörk í því fimmta. Hin Norð­ur­löndin skipa því fjögur efstu sætin yfir þau lönd sem hafa mest fjöl­miðla­frelsi á meðan að Ísland fellur niður list­ann. 

Alls hefur Ísland færst niður um fimm sæti á list­­anum á tveimur árum, en landið sat í 10. sæti árið 2017.

Ekki er að finna ítar­­­lega grein­ingu um for­­­sendur sem liggja að baki mat­inu en í stuttri sam­an­­­tekt sam­tak­anna um Ísland segir þó að aðstæður blaða­­manna á land­inu hafi versnað frá árinu 2012 vegna þess að sam­­skipti milli stjórn­­­mála­­manna og fjöl­miðla hafi súrn­að. Það er sama rök­­semd­­ar­­færsla og var færð fyrir versn­andi ástandi í umfjöllun sam­tak­anna í fyrra og hitteð­fyrra.

Auglýsing
Þar er einnig gert tals­vert úr metn­að­­­ar­­­fullri þings­á­­­lykt­un­­­ar­til­lögu sem sam­­­þykkt var 2010 um að gera Ísland að for­yst­u­­­ríki í vernd upp­­­­­ljóstr­­­ara, gagn­­­sæ­is, tján­ing­­ar­frelsis og fjöl­miðla­frels­­­is.

Ísland með tvö­falt hærri ein­kunn en Nor­egur

Í úttekt­inni er 180 löndum og svæðum raðað upp í röð eftir fjöl­miðla­frelsi. Hún byggir á því að sér­­fræð­ingar svara spurn­inga­list­­anum sem gerður er af sam­tök­un­­um. Þau svör eru síðan greind og lönd­unum gefin ein­kunn. Því lægri sem hún er,  því meira er fjöl­miðla­frels­ið. Nor­egur fær til að mynda ein­kunn­ina 7,84 og Finn­land, Sví­­þjóð og Dan­­mörk fá öllu ein­kunn sem er 9,25 eða lægri.

Ísland fær hins vegar 15,12 og stiga­­fjöldi lands­ins eykst um 0,41 á milli ára. Það þýðir að ein­kunn Nor­egs er um helm­ingur af ein­kunn Íslands.

Norð­­­ur­-Kór­ea, sem vermdi neðsta sæti list­ans árum, komst upp í næst neðsta sætið í fyrra þegar landið hafði sæta­skipti Túrk­­menist­an. Norð­­ur­-Kórea end­ur­heimtir hins vegar botns­ætið í ár og Túrk­menar setj­ast í næst sæti við, eða í sæti 179. Þar fyrir ofan  eru Víetnam, Dji­bú­tí, og Eritr­ea.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent