Eigandi Landsvirkjunar, sem er íslenska ríkið, samþykkti á aðalfundi fyrirtækisins í dag að greiða sér tíu milljarða króna í arð út úr fyrirtækinu vegna frammistöðu þess á síðasta ári.
Það er rúmlega tvisvar sinnum hærri arðgreiðsla en á síðasta ári, þegar hún nam 4,25 milljörðum króna. Árin þar á undan nam arðgreiðslan 1,5 milljörðum króna árlega.
Á aðalfundinum skipaði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í stjórn Landsvirkjunar samkvæmt lögum um fyrirtækið. Ekki voru gerðar breytingar á skipan stjórnar frá fyrra starfsári. Aðalmenn í stjórn verða því áfram Jónas Þór Guðmundsson, sem er formaður stjórnar, Álfheiður Ingadóttir, Jón Björn Hákonarson, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir og Gunnar Tryggvason.
Hagnaður Landsvirkjunar var 13,6 milljarðar króna á síðasta ári, sem er svipaður hagnaður í íslenskum krónum og árið 2018. Þegar hagnaðurinn er skoðaður í Bandaríkjadölum dróst hann þó saman um tæp sjö prósent.
Landsvirkjun hagnaðist um 21 milljarð króna á síðasta ári fyrir óinnleysta fjármagnsliði. Það er 5,9 prósent minni hagnaður en árið 2018 og spilar tekjutap vegna stöðvunar á kerskála þrjú hjá Rio Tinto í Straumsvík þar meginrullu. Það tekjutap er metið á 16 milljónir dala, eða um 1,9 milljarð króna.
Auk þess var afurðaverð stórra viðskiptavina Landsvirkjunar, sem eru að uppistöðu þrjú stór álver, lágt og hafði það neikvæð áhrif á tekjur. Þar skiptir mestu máli að stærsti orkusölusamningur Landsvirkjunar, við Alcoa Fjarðarál, er enn bundinn við þróun álverðs á heimsmarkaði, sem lækkaði mikið í fyrra. Alls er um að ræða 33 prósent af raforkusölu Landsvirkjunar.
Rekstrartekjur Landsvirkjunar lækkuðu um 4,6 prósent milli ára og voru 61,7 milljarðar króna. Alls greiddi fyrirtækið um 7,2 milljarða króna í tekjuskatt á síðasta ári.
Eigið fé um 271 milljarður króna
Skuldir Landsvirkjunar hafa lækkað hratt undanfarin ár og engin breyting varð þar á í fyrra. Nettó lækkuðu þær um 23,4 milljarða króna á árinu og voru í árslok 204,7 milljarðar króna, eða 1.691 milljón Bandaríkjadala. Matsfyrirtækið Moody's hækkaði lánshæfiseinkunn fyrirtækisins á árinu og S&P Global Ratings breytti horfum á sinni einkunn úr stöðugum í jákvæðar.
Eigið fé Landsvirkjunar var 2.235 milljónir Bandaríkjadala í árslok 2019, eða um 271 milljarðar króna. Flestir sérfræðingar telja reyndar að eignir Landsvirkjunar séu verulega vanmetnar – þær voru 531 milljarður króna um síðustu áramót – þar sem enn eigi eftir að uppfæra virði virkjana í eigu fyrirtækisins að raunvirði.
Í fyrra greiddi Landsvirkjun, líkt og áður sagði, um 4,3 milljarða króna í arð til eiganda síns vegna frammistöðu ársins 2018. Búið var að greina frá því að fyrirtækið stefndi að því í nánustu framtíð að greiða tíu til 20 milljarða króna á ári í arð til eiganda síns. Nú hefur fyrsta slíka arðgreiðslan litið ljós.
Til stóð að þessar arðgreiðslur myndu verða grunnur fyrir Þjóðarsjóð sem í átti að vera um 500 milljarðar króna eftir tæpa tvo áratugi. Frumvarp um Þjóðarsjóð er þó enn ósamþykkt og er sem stendur í þinglegri meðferð.