RÚV skilaði hagnaði í fyrra – Rekstrartekjur voru 6,9 milljarðar

Auglýsingatekjur RÚV drógust saman um tæplega 200 milljónir króna í fyrra. Tekjur af samkeppnisrekstri voru samt sem áður 2,2 milljarðar króna á árinu 2019.

RÚV Mynd: RÚV
Auglýsing

RÚV hagn­að­ist um 6,6 millj­ónir króna á árinu 2019. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins voru 6,9 millj­arðar króna. Þar af komu 4,7 millj­arðar króna úr rík­is­sjóði í formi þjón­ustu­tekjna af útvarps­gjaldi, en 2,2 millj­arðar króna voru tekjur úr sam­keppn­is­rekstri, sem er að uppi­stöðu sala aug­lýs­inga og kost­aðs efn­is.

Í til­kynn­ingu frá RÚV segir að aug­lýs­inga­tekjur hafi lækkað um tæp­lega 200 millj­ónir króna milli ára. „Mögu­leikar RÚV til þess að afla aug­lýs­inga­tekna hafa verið tak­mark­aðir á und­an­förnum árum auk þess sem aug­lýs­inga­mark­að­ur­inn er að breyt­ast. ­Ljóst er að lækkun aug­lýs­inga­tekna hefur mikil áhrif á fjár­mögnun RÚV þar sem fjár­mögnun almanna­þjón­ust­unnar bygg­ist að hluta til á tekjum af sölu aug­lýs­inga.“

Í  árs­lok námu heild­ar­eignir félags­ins 8,1 millj­arður króna og eigið fé var 2,1 millj­arður króna. Eig­in­fjár­hlut­fall var 26,2 pró­sent í árs­lok 2019. ­Fjöldi árs­verka á árinu 2019 var 271.

Auglýsing

Rekstr­ar­hagn­aður RÚV fyrir fjár­magns­gjöld, afskriftir og skatta var 290 millj­ónir króna í fyrra.

Hefði verið ógjald­fært án lóða­sölu

Afkoma RÚV á árunum 2013 til 2018 var jákvæð um 1,5 millj­­arða króna, en sú afkoma skýrð­ist fyrst og fremst af hagn­aði vegna sölu bygg­inga­réttar á lóð félags­­ins við Efsta­­leiti. Ef litið er á afkomu félags­­ins fyrir tekju­skatt og sölu­hagnað hefði heild­­ar­af­koma félags­­ins á þessu tíma­bili var hún nei­­kvæð um 61 milljón króna. Án lóða­­söl­unnar hefði RÚV ohf. orðið ógjald­­fært.

Þetta er kom fram í stjórn­­­sýslu­út­­­tektar Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar á RÚV sem birt var nóv­em­ber í fyrra. 

Þar benti rík­­is­end­­ur­­skoð­andi enn fremur á að RÚV beri að upp­­­fylla laga­­legar skyldur um stofnun dótt­­ur­­fé­laga fyir aðra starf­­semi en fjöl­miðlun í almanna­þágu. Það hafði RÚV ekki gert þrátt fyrir að laga­á­­kvæði krefj­ist þess á þeim tíma sem stjórn­sýslu­út­tektin var gerð. 

Í árs­lok í fyrra var stofnað dótt­ur­fé­lagið RÚV Sala ehf., sem mun sjá um starf­semi sam­keppn­is­rekstr­ar­hluta RÚV frá og með árinu 2020. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent