Ekkert nýtt smit greindist á Íslandi í gær

Í fyrsta sinn síðan 29. febrúar greindist ekkert nýtt COVID-19 smit á Íslandi í gær, hvorki á sýkla- og veirufræðideild Landspítala né hjá Íslenskri erfðagreiningu, en allt í allt voru tæplega 200 sýni tekin.

Landspítalinn
Auglýsing

Ekk­ert nýtt COVID-19 smit greind­ist á Íslandi í gær, í fyrsta sinn frá 29. febr­ú­ar. Fyrsta smitið hér­lendis greind­ist degi áður, eða 28. febr­ú­ar. Alls voru tekin rétt innan við 200 sýni, 178 á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala og 15 hjá Íslenskri erfða­grein­ingu.

„Miðað við hvernig þetta hefur verið síð­ustu daga þá hafa verið fá til­felli suma dag­ana og þetta kemur svo sem ekk­ert á óvart að það komi einn dagur þar sem við greinum ekk­ert til­felli,“ sagði Karl G. Krist­ins­son yfir­læknir á sýkla- og veiru­fræði­deild­inni í sam­tali við Vísi um hádeg­is­bil, en þá stað­festi hann við mið­il­inn að ekk­ert sýni hefði greinst jákvætt þar í gær.

Auglýsing

Nú er ljóst, sam­kvæmt tölum á covid.is, að ekk­ert sýni var jákvætt hjá Íslenskri erfða­grein­ingu held­ur, en þar voru sem áður segir ein­ungis 15 sýni tek­in, sem er mun minna en und­an­farna daga. Í fyrra­dag voru þannig tekin yfir fjögur hund­ruð sýni og tvö þeirra reynd­ust jákvæð.

Þrettán manns eru nú á sjúkra­húsi vegna veiru­sýk­ing­ar­inn­ar, þar af fimm á gjör­gæslu­deild. 237 manns eru nú með virkan sjúk­dóm á land­inu, en í heild­ina eru til­fellin orðin 1.789 tals­ins hér á land­i. 1.542 hafa náð bata, en tíu manns hafa lát­ist eftir að hafa greinst með COVID-19.

Í heild­ina eru nú 726 manns í sótt­kví, en 18.691 manns hafa lokið sótt­kví nú þeg­ar. Á Íslandi hafa verið tekin 45.286 sýni til þessa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent