Lára Björg Björnsdóttir, fyrrverandi upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar, hefur verið ráðin sem nýr aðstoðarmaður ríkisstjórnar á sviði jafnréttismála og annarra samstarfsverkefna ráðuneyta. Ríkisstjórnin samþykkti þetta á fundi sínum í morgun.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins í dag.
Lára Björg tekur við starfinu af Höllu Gunnarsdóttur sem hefur látið af störfum að eigin ósk en hún var ráðin framkvæmdastjóri ASÍ í lok mars síðastliðins.
Fram kemur í tilkynningunni að Lára Björg muni meðal annars hafa aðkomu að heildarendurskoðun jafnréttislaga og undirbúningi alþjóðlegrar ráðstefnu samtaka sem berjast gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni sem ákveðið hefur verið að halda á Íslandi í maí 2021. Þá muni Lára Björg einnig taka þátt í samstarfi fleiri ráðuneyta í útlendingamálum auk aðkomu að margháttuðum öðrum verkefnum í samstarfi ráðuneyta.