VR hefur ákveðið að hefja formlegar viðræður við SA um leiðir til að verja kjarasamning þeirra, kaupmátt og störf. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, í dag.
„Þar sem ástandið á vinnumarkaði versnar dag frá degi, og líklegt að mánaðamótin verði þau svörtustu í sögu hreyfingarinnar, höfum við ákveðið að hefja formlegar viðræður við SA um leiðir til að verja kjarasamninginn okkar, kaupmáttinn og störfin,“ skrifar hann.
Markmiðið er samkvæmt Ragnari Þór að finna leiðir til að verja „stöðu okkar fólks og fá stjórnvöld að borðinu líka“.
Dapurlegt að aðgerðapakkarnir séu ákveðnir af fámennum hóp
„Við getum ekki horft upp á þá skelfilegu stöðu sem uppi er á íslenskum vinnumarkaði án þess að taka þetta skref og ræða þríhliða lausnir,“ skrifar hann.
Ragnar Þór segir það vera dapurlegt að aðgerðapakkar ríkisins skuli vera ákveðnir af fámennum hóp í stað víðtækara samráðs aðila vinnumarkaðarins og stjórnarandstöðunnar. Sérstaklega í ljósi þess hversu alvarleg staðan sé og þá staðreynd að allar ákvarðanir og skuldbindingar hafi mikil áhrif á lífskjör almennings og komandi kynslóðir.
Hann greinir frá því að með VR í þessari vegferð séu Framsýn stéttarfélag og Verkalýðsfélag Akraness en þessi félög ásamt Landssambandi verslunarmanna fara með umboð um 47 þúsund félagsmanna.
Von er á því samkvæmt formanninum að fleiri félög bætist í hópinn.
Þar sem ástandið á vinnumarkaði versnar dag frá degi, og líklegt að mánaðarmótin verði þau svörtustu í sögu...
Posted by Ragnar Þór Ingólfsson on Monday, April 27, 2020