Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur Marel, hefur verið kjörinn nýr formaður Samtaka iðnaðarins (SI) en frá þessu var tilkynnt á aðalfundi samtakanna í morgun. Hann var kjörinn með 71,5 prósent greiddra atkvæða. Árni verður formaður SI fram til Iðnþings 2022, að því er fram kemur í tilkynningu frá samtökunum. Hann tekur við af Guðrúnu Hafsteinsdóttur hjá Kjörís.
Í framboði til formanns SI voru Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur Marel, og Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir, stjórnarformaður Límtré Vírnets og Securitas.
Auglýsing
Alls gáfu sjö kost á sér til almennrar stjórnarsetur og var kosið um fimm sæti. Þeir sem setjast í stjórn SI til næstu tveggja ára:
- Arna Arnardóttir, gullsmiður
- Egill Jónsson, Össur
- Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, CRI
- Valgerður Hrund Skúladóttir, Sensa
- Vignir Steinþór Halldórsson, MótX
Fyrir í stjórn SI eru:
- Ágúst Þór Pétursson, húsasmíðameistari
- Guðrún Halla Finnsdóttir, Norðurál
- Magnús Hilmar Helgason, Launafl
- Sigurður R. Ragnarsson, ÍAV