„Í öllum kreppum leita fjármagnseigendur tækifæra til að auka auð sinn og komast yfir fyrirtæki, stofnanir og jafnvel heimili á brunaútsölu. Eina aflið gegn slíkri græðgi er samstaða fólks og barátta fjöldahreyfinga. Við munum berjast gegn því að endurreisnin verði byggð á að sameignir okkar verði seldar eða að slegið verði af kröfum um laun og aðbúnað vinnandi fólks. Það hefur aldrei verið mikilvægara en einmitt núna að verja þau réttindi sem við höfum samið um. Við viljum ekki ástand þar sem atvinnulaust fólk er svo örvæntingarfullt að það undirbýður hvert annað í þeirri von að fá einhvern pening í vasann. Eða að slakað sé á öryggi vinnandi fólks í skjóli ástandsins. Þetta er raunveruleg hætta hér á landi og um heim allan.“
Þetta segir Drífa Snædal, forseti ASÍ, í ávarpi sínu vegna 1. maí, baráttudags verkalýðsins. Ávarpið, sem var tekið upp að þessu sinni vegna þess ástands sem varir út af COVID-19 faraldrinum, er hægt að horfa á í heild sinni neðst í fréttinni.
Hvorki gerlegt né æskilegt að leita í sama farið
Drífa segir þar að hérlendis hafi nálgunin við faraldurinnverið skynsamlegt. Leitað hafi verið til fólks sem besta þekkingu hafi á faröldrum og almannaöryggi og fyrirséð er að geta andað aðeins léttar, þó fyrirvararnir séu enn margir og verði áfram. „Alltaf búum við vel að því að eiga öflugt heilbrigðisstarfsfólk og sameiginlega innviði, en aldrei hefur það verið jafn ljóst og nú. Við erum komin í þá stöðu á undan flestum ríkjum að geta einhent okkur í uppbyggingu og næstu skref.“
Í huga Drífu er hvorki gerlegt né æskilegt að leita í sama farið. „Leiðarstef okkar við uppbyggingu samfélagsins og atvinnulífsins á að vera að allir hafi framfærslu; vinnandi fólk, fólk í atvinnuleit, öryrkjar, aldraðir og námsmenn. Ef við tryggjum ekki framfærslu fólks verður kreppan dýpri og erfiðari bæði fyrir einstaklinga og okkur sem samfélag. Framfærslutrygging er því lykilatriði í vörn og viðspyrnu.“
Hún segir í ávarpinu að Ísland sé fyrirmynd annarra í viðbrögðum við faraldrinum og hvetur til þess að Ísland verði líka fyrirmynd í því hvernig landið byggi sig upp að nýju. „Við viljum byggja upp réttlátt þjóðfélag. Við skulum einsetja okkur að eftir eitt ár, fyrsta maí árið 2021, verði búið að útrýma atvinnuleysi með góðum og öruggum störfum. Hér verðum við í fullum gangi að skapa ný tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki í matvælaframleiðslu, heilbrigðisþjónustu, menntun, tækni og nýsköpun. Við höfum styrkt okkar innviði og sameiginlegar grunnstoðir. Við getum horft stolt til baka þar sem lífskjörin voru varin, komið var í veg fyrir að reikningnum væri velt yfir á heimilin og jöfnuður hafður að leiðarljósi. Við búum við lýðræðislegt og opið samfélag. Um þetta sameinumst við í dag, á baráttudegi verkalýðsins.“