Þorgerður Katrín: Af hverju þetta skyndilega sinnuleysi gagnvart eignarréttinum?

Formaður Viðreisnar spyr af hverju ekki sé hægt að taka tillit til neytenda í aðgerðum ríkisstjórnarinnar en hún telur að leiðin sem þau fara gangi freklega gegn stjórnarskránni.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, for­maður Við­reisn­ar, fjall­aði um neyt­enda­mál og aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna COVID-19 far­ald­urs­ins í dag­­skrár­liðnum störf þings­ins í dag. Hún seg­ist hafa samúð með ferða­þjón­ust­unni – ekki síst með ferða­skrif­stofum sem glíma nú við lausa­fjár­vanda. Hún segir þó að leiðin sem rík­is­stjórnin hafi valið sé með ein­dæm­um. „Það er með ólík­indum að rík­is­stjórnin hafi valið þá leið að ganga svo frek­lega á rétt neyt­enda.“

Breki Karls­son, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV í vik­unni að ráð­ist væri að rétti neyt­enda úr öllum átt­um. Ferða­skrif­stofur neit­uðu að end­ur­greiða ferðir sem ekki verða farn­ar. Lík­ams­rækt­ar­stöðv­ar, tón­list­ar- og mynd­lista­skólar rukk­uðu fyrir tíma sem ekki er hægt að nýta. Verði stjórn­ar­frum­varp sem nú er fyrir Alþingi að lögum væri verið að varpa lausa­fjár­vanda ferða­skrif­stofa yfir á herðar neyt­enda.

Fram­kvæmda­stjóri Sam­taka ferða­þjón­ust­unn­ar, Jóhannes Þór Skúla­son, svar­aði Breka og sagði það af og frá að neyt­endur væru gerðir að lána­stofn­unum fyrir ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki.

Auglýsing

Af því að neyt­endur eru ekki útgerð­ar­menn?

Þor­gerður Katrín vildi und­ir­strika að hún skildi lausa­fjár­vanda ferða­skrif­stofa og að hann þyrfti að leysa. Það yrði þó ekki gert með því að ganga á rétt­indi neyt­enda. „Ég sit í atvinnu­vega­nefnd og um þetta mál var engin umræða í morgun af því að greini­lega eru ein­hver áhöld um hvernig eigi að leysa málið innan stjórn­ar­flokk­anna. Það liggur líka ljóst fyrir að þessi leið rík­is­stjórn­ar­innar gengur frek­lega gegn 72. gr. stjórn­ar­skrár­inn­ar, gegn eign­ar­rétt­in­um,“ sagði hún á þingi í dag. 

Hún spurði af hverju þetta skyndi­lega sinnu­leysi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, þar með talið Sjálf­stæð­is­flokks­ins, væri gagn­vart eign­ar­rétt­in­um. „Af hverju er ekki hægt að taka til­lit til neyt­enda? Af því að neyt­endur eru ekki útgerð­ar­menn? Af því að Neyt­enda­sam­tökin eru ekki sam­tök hags­muna­að­ila í útveg­i?“ spurði hún og bætti því við að leiðin sem rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hefðu ákveðið gengi bæði gegn eign­ar­rétti og hags­munum neyt­enda.

„Við þurfum engu að síður að taka utan um ferða­skrif­stof­urn­ar. Ef málið breyt­ist ekki í með­förum nefnd­ar­innar mun ég þess vegna leggja til til­lögu í anda Dana, þ.e. að verja neyt­endur en halda líka uppi eðli­legu umhverfi, eins eðli­legu og hægt er í því ann­ar­lega umhverfi sem við búum við núna. Ég furða mig á leið Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem allt í einu sýnir svo skringi­legt sinnu­leysi gagn­vart eign­ar­rétt­in­um,“ sagði hún að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent