Stjórn Haga ákvað í dag að endurgreiða Vinnumálastofnun þann kostnað sem féll til vegna starfsfólks dótturfyrirtækja Haga sem nýttu sér hlutabótaleiðina í aprílmánuði, en félagið hefur verið gagnrýnt fyrir að kaupa eigin hlutabréf og færa þannig fé til hluthafa sinna á sama tíma og félagið nýtir hlutabótaúrræði stjórnvalda.
Starfsmenn Zöru, Útilífs og veitingasölu Olís hafa verið í skertu starfshlutfalli undanfarið, en því starfsfólki verður boðið að fara aftur í það starfshlutfall sem áður var, samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Í tilkynningunni segir starfshlutföll hafi verið skert til að forðast uppsagnir og viðhalda ráðningarsambandi við starfsfólk eftir fremsta megni.
„Á þessum tímapunkti er betur hægt að sjá þau áhrif sem faraldurinn mun hafa á félagið í heild og eru þau minni en óttast var í upphafi. Nú telst því rétt að endurgreiða þá fjárhæð sem Vinnumálastofnun greiddi til starfsfólks Haga í aprílmánuði,“ segir í tilkynningu félagsins, en þar kemur fram að endurgreiðslan nemi um 36 milljónum króna.
„Önnur dótturfyrirtæki Haga nýttu sér ekki þessa leið, t.a.m. Bónus, Hagkaup, vöruhúsin Aðföng og Bananar, lyfjaverslanir og framleiðslustöðvar,“ segir í tilkynningu Haga, þar sem jafnframt kemur fram að ekki hafi þurft að grípa til uppsagna innan samstæðunnar vegna áhrifa COVID-19 faraldursins.
Í tilkynningu Haga kemur einnig fram að í dag hafi stjórn félagsins tekið ákvörðun um að ljúka endurkaupaáætlun eigin hluta fyrr en áætlað var, en áætlunin hefur verið í gildi frá því í lok febrúar.
„Áætlað var að endurkaup myndu nema 500 milljónum króna að hámarki en félagið hefur þegar keypt eigin hluti skv. áætluninni að fjárhæð 450 milljónir króna,“ segir í tilkynningunni.