Icelandair ehf. og Flugvirkjafélag Íslands hafa undirritað nýjan kjarasamning á milli félaganna fyrir tímabilið 1. janúar 2021 til 31. desember 2025. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair í dag.
„Samningurinn er í samræmi við þau markmið sem samningsaðilar lögðu upp með sem í senn styrkir samkeppnishæfni félagsins og stendur vörð um starfskjör og gott starfsumhverfi. FVFÍ mun nú leggja samninginn fyrir félagsmenn sína til atkvæðagreiðslu,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram að kórónuveirufaraldurinn og afleiðingar hans hafi haft gríðarleg áhrif á starfsemi Icelandair. Mikil óvissa sé um hvenær ferðatakmörkunum verði aflétt og eftirspurn eftir flugi og ferðalögum taki við sér á ný. Félagið hafi þurft að grípa til erfiðra en nauðsynlegra aðgerða til að bregðast við óvissunni. Á sama tíma sé unnið að því að styrkja samkeppnishæfni félagsins til lengri tíma.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir í tilkynningunni það vera ánægjulegt og mikilvægt að hafa undirritað langtímasamning við eitt af lykilstéttarfélögum þeirra. „Viðræðurnar voru lausnamiðaðar allt frá upphafi enda hafa aðstæður í umhverfi flugfélaga aldrei verið meira krefjandi en nú. Við stóðum frammi fyrir ýmsum áskorunum sem við unnum að í sameiningu að leiða til lykta. Þetta er mikilvægt skref í að styrkja stöðu félagsins og samkeppnishæfni á alþjóðamarkaði svo við verðum í stakk búin til að sækja fram af krafti þegar óvissunni lýkur og til framtíðar.“
Guðmundur Úlfar Jónsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, segist telja að samninganefnd Flugvirkjafélags Íslands hafi mætt þeim þörfum og markmiðum sem Icelandair telji að þurfi að uppfylla í því ástandi sem ríkir. „Undirritun á samningi er lausn fyrir báða aðila í þeirri stöðu. Við lögðum áherslu á að kjarasamningsbundin gildi flugvirkja yrðu varðveitt þannig að sátt væri um stöðu mála.“