Þrjátíu og tveir sóttu um stöðu forstjóra Ríkiskaupa, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins í dag. Fjármála- og efnahagsráðuneytið auglýsti á dögunum laust til umsóknar stöðu forstjórans. Umsóknarfrestur rann út fyrir viku, þann 11. maí.
Samkvæmt ráðuneytinu þarf forstjórinn að hafa framtíðarsýn fyrir rekstur og þjónustu ríkisins og frumkvæði og metnað til að hrinda verkefnum í framkvæmd. Viðkomandi mun taka virkan þátt í umbreytingarferli og innleiðingu aðgerða þvert á stofnanir ríkisins ásamt því að stýra stofnuninni og bera ábyrgð á rekstri hennar, þjónustu og árangri.
Fjármála- og efnahagsráðherra skipar forstjóra Ríkiskaupa til fimm ára.
Auglýsing
Eftirfarandi sóttu um stöðuna:
- Ari Matthíasson Fyrrv. Þjóðleikhússtjóri
- Björgvin Guðni Sigurðsson Framkvæmdastjóri
- Björgvin Víkingsson Head of supply chain management
- Björn Hafsteinn Halldórsson Framkvæmdastjóri
- Björn Óli Ö Hauksson Verkfræðingur
- Dagmar Sigurðardóttir Sviðsstjóri
- Einar Birkir Einarsson Sérfræðingur
- Elvar Steinn Þorkelsson Framkvæmdastjóri
- Erling Tómasson Fjármálastjóri
- Eyjólfur Vilberg Gunnarsson Forstöðumaður
- Guðmundur I Bergþórsson Sérfræðingur
- Guðrún Pálsdóttir Fjármálastjóri
- Helgi Steinar Gunnlaugsson M Sc. í alþjóðasamskiptum
- Hildur Georgsdóttir Lögmaður
- Hildur Ragnars Framkvæmdastjóri
- Hlynur Atli Sigurðsson Framkvæmdastjóri
- Höskuldur Þór Þórhallsson Lögmaður
- Ingólfur Þórisson Framkvæmdastjóri
- Jóhann Jóhannsson Forstöðumaður
- Jón Axel Pétursson Framkvæmdastjóri
- Jón Garðar Jörundsson Framkvæmdastjóri
- Ragnar Davíðsson Sviðstjóri
- Reynir Jónsson Sérfræðingur
- Sigurður Erlingsson framkvæmdastjóri
- Sólmundur Már Jónsson Aðstoðarforstjóri
- Styrkár Jafet Hendriksson Sérfræðingur
- Sæbjörg María Erlingsdóttir Framkvæmdarstjóri
- Sæunn Björk Þorkelsdóttir Forstöðumaður
- Tryggvi Harðarson Verkfræðingur
- Valdimar Björnsson Fjármálastjóri
- Þórður Bjarnason Viðskiptafræðingur
- Þórhallur Hákonarson Fjármálastjóri