Vill endurskoða lög um loftferðir

Núgildandi lög um loftferðir eru komin til ára sinna og þrátt fyrir fjölda breytinga er talið tímabært að yfirfara þau heildstætt, samkvæmt samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

Sigurður Ingi Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhannsson
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, áformar að leggja fram nýtt frum­varp til laga um loft­ferðir næsta vetur en um er að ræða frum­varp til nýrra heild­ar­laga. End­ur­skoð­unin er nú komin á sam­ráðs­gátt stjórn­valda og er umsagn­ar­frestur til 19. júní næst­kom­andi.

Á sam­ráðs­gátt­inni segir að núgild­andi lög um loft­ferðir séu nokkuð komin til ára sinna og þrátt fyrir fjölda breyt­inga sé talið tíma­bært að yfir­fara þau heild­stætt.

Mark­mið heild­ar­end­ur­skoð­unar og þeirra áforma sem hér eru lögð fram er, sam­kvæmt stjórn­völd­um, einkum að tryggja flug­starf­semi skýra lagaum­gjörð í sam­ræmi við flug­stefnu, stuðla að sam­keppn­is­hæfni flug­starf­semi hér á landi og að umgjörð eft­ir­lits sem henni er búin sé í sam­ræmi við þær reglur sem gilda innan EES. Þá sé jafn­framt hugað að því að tryggja ESB-­reglu­gerð, afleiddum EES-­gerðum á sviði flug­ör­yggis og öðrum EES-­gerðum full­nægj­andi laga­stoð og skýrar heim­ildir séu fyrir hendi til setn­ingar reglu­gerða á grund­velli lag­anna.

Auglýsing

Óska eftir ábend­ingum og til­lögum

Á sam­ráðs­gátt­inni segir jafn­framt að í þeirri end­ur­skoðun sem fara mun fram verði byggt á þeim þjóð­rétt­ar­legu skuld­bind­ingum sem Ísland hefur und­ir­geng­ist. Beri þar sér­stak­lega að nefna EES-­gerðir á sviði flug­ör­ygg­is, flug­vernd­ar, neyt­enda­verndar og umhverf­is­vernd­ar. Einkum ESB-­reglu­gerð um sam­eig­in­legar reglur um almenn­ings­flug og stofnun Flug­ör­ygg­is­stofn­unar Evr­ópu­sam­bands­ins og þeim afleiddu gerðum sem á reglu­gerð­inni byggja og fyr­ir­hugað er að taka upp í EES-­samn­ing­inn og inn­leiða í lands­rétt. Enn fremur aðra alþjóða­samn­inga sem Ísland hefur full­gilt þar á meðal samn­ing­inn um sam­eig­in­lega evr­ópska flug­svæðið frá 2006.

Sam­fara end­ur­skoðun sé einnig áformað að leggja til „nauð­syn­legar breyt­ingar á lög­um“ svo hægt sé að full­gilda þrjá alþjóða­samn­inga á sviði flug­vernd­ar. Þá sé með frum­varp­inu einnig áformað að gera breyt­ingar á fáeinum öðrum lögum til að ná fram­an­greindum mark­miðum og fella brott tvenn lög sem talin eru úrelt.

Sér­stak­lega er óskað eftir ábend­ingum og eða til­lögum frá hags­muna­að­ilum sem stutt geta við þá vinnu sem fram undan er.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent