Ásdís Kristjánsdóttir, sem hefur gegnt starfi forstöðumanns efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins (SA, hefur verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri samtakanna. Hún tekur við af Hannesi G. Sigurðssyni sem gegnt hefur starfinu frá árinu 1991.
Í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins kemur fram að Hannes muni áfram gegna mikilvægu hlutverki innan samtakanna sem ráðgjafi stjórnar og framkvæmdastjórnar.
Þar er einnig greint frá því að Anna Hrefna Ingimundardóttir hafi verið ráðin forstöðumaður efnahagssviðs og tekur við af Ásdísi. Þá hefur Védís Hervör Árnadóttir verið ráðin sem miðlunarstjóri samtakanna og mun leiða stefnumörkun í markaðs- og miðlunarstarfi og styrkja stafræna þróun samtakanna.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er Halldór Benjamín Þorbergsson. Hann segir að Hannes hafi markað djúp spor í þróun íslensks vinnumarkaðar og kjararannsókna sem burðarás hjá VSÍ og Samtökum atvinnulífsins í 35 ár. „Við fögnum því að fá að njóta krafta hans áfram. Ásdís Kristjánsdóttir tekur nú við stöðu hans en ásamt henni fáum við inn fleira öflugt fólk sem eru þær Anna Hrefna Ingimundardóttir og Védís Hervör Árnadóttir. Þá verður til ný staða í miðlun og stafrænum lausnum en með því viljum við leggja áherslu á nýtingu stafrænna lausna til þess að auka gagnsæi og bæta upplýsingamiðlun til félagsmanna um land allt. Framundan eru verulegar áskoranir fyrir íslenskt atvinnulíf. Með þessum ráðningum styrkist enn frekar öflugt teymi SA og þjónusta við félagsmenn okkar hringinn í kringum landið er aukin.“
Ásdís hefur starfað sem forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins undanfarin sex ár og byggt sviðið upp frá grunni. Ásdís hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, m.a sem forstöðumaður greiningardeildar Arion banka og hagfræðingur í fjármálaráðuneytinu. Hún hefur haldið erindi á fjölda ráðstefna innanlands og erlendis, stýrt greiningum og skrifað greinar um íslensk efnahagsmál í um 15 ár. Hún hefur verið skipuð í starfshópa á vegum stjórnvalda, þ.á.m um endurskoðun peningastefnunnar og verkefnahóp Samráðsvettvangs um aukna hagsæld.
Ásdís er með BS gráðu í iðnaðarverkfræði og MS gráðu í hagfræði og hefur auk þess réttindi sem löggiltur verðbréfamiðlari.