Ásdís Kristjánsdóttir ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri SA

Þrjár konur hafa tekið við nýjum stöðum innan Samtaka atvinnulífsins.

Védís Hervör Árnadóttir, Ásdís Kristjánsdóttir og Anna Hrefna Ingimundardóttir.
Védís Hervör Árnadóttir, Ásdís Kristjánsdóttir og Anna Hrefna Ingimundardóttir.
Auglýsing

Ásdís Krist­jáns­dótt­ir, sem hefur gegnt starfi for­stöðu­manns efna­hags­sviðs Sam­taka atvinnu­lífs­ins (SA, hefur ver­ið ráð­in að­stoð­ar­fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna. Hún tekur við af Hann­esi G. Sig­urðs­syni sem gegnt hefur starf­inu frá árinu 1991. 

Í til­kynn­ingu frá Sam­tökum atvinnu­lífs­ins kemur fram að Hann­es muni áfram gegna mik­il­vægu hlut­verki innan sam­tak­anna ­sem ráð­gjafi ­stjórnar og fram­kvæmda­stjórn­ar. 

Þar er einnig greint frá því að Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir hafi ver­ið ráð­in ­for­stöðu­maður efna­hags­sviðs og tek­ur við af Ásdísi. Þá hefur Védís Her­vör Árna­dóttir ver­ið ráð­in ­sem miðl­un­ar­stjóri sam­tak­anna og mun leiða stefnu­mörkun í mark­aðs- og miðl­un­ar­starfi og styrkja staf­ræna þróun sam­tak­anna.

Auglýsing

Fram­kvæmda­stjóri Sam­taka atvinnu­lífs­ins er Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son. Hann segir að Hannes hafi mark­að ­djúp spor í þróun íslensks vinnu­mark­aðar og kjara­rann­sókna sem burða­rás hjá VSÍ og Sam­tökum atvinnu­lífs­ins í 35 ár. „Við fögnum því að fá að njóta krafta hans áfram.  Ásdís Krist­jáns­dóttir tekur nú við stöðu hans en ásamt henni fáum við inn fleira öfl­ugt fólk sem eru þær Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir og Védís Her­vör Árna­dótt­ir. Þá verður til ný staða í miðlun og staf­rænum lausnum en með því viljum við leggja áherslu á nýt­ingu staf­rænna lausna til þess að auka gagn­sæi og bæta upp­lýs­inga­miðlun til félags­manna um land allt. Framundan eru veru­legar áskor­anir fyrir íslenskt atvinnu­líf. Með þessum ráðn­ingum styrk­ist enn frekar öfl­ugt teymi SA og þjón­usta við félags­menn okkar hring­inn í kringum landið er auk­in.“

Ásdís hefur starfað sem for­stöðu­maður efna­hags­sviðs Sam­taka atvinnu­lífs­ins und­an­farin sex ár og byggt sviðið upp frá grunni. Ásdís hefur víð­tæka reynslu úr atvinnu­líf­inu, m.a sem for­stöðu­maður grein­ing­ar­deildar Arion banka og hag­fræð­ingur í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Hún hefur haldið erindi á fjölda ráð­stefna inn­an­lands og erlend­is, stýrt grein­ingum og skrifað greinar um íslensk efna­hags­mál í um 15 ár. Hún hefur verið skipuð í starfs­hópa á vegum stjórn­valda, þ.á.m um end­ur­skoðun pen­inga­stefn­unnar og verk­efna­hóp Sam­ráðs­vett­vangs um aukna hag­sæld.

Ásdís er með BS gráðu í iðn­að­ar­verk­fræði og MS gráðu í hag­fræði og hefur auk þess rétt­indi sem lög­giltur verð­bréfa­miðl­ari.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent