Tekjur vegna arðgreiðslna jukust í fyrra en runnu til færri einstaklinga

Alls voru tekjur vegna arðs 46,1 milljarður króna í fyrra. Þeim einstaklingum sem höfðu slíkar tekjur fækkaði á því ári. Alls eru 75 prósent eigna heimila landsins bundnar í fasteignum.

Þorri landsmanna greiðir tekjuskatt og útsvar. Hluti greiðir hins vegar fyrst og fremst fjármagnstekjuskatt.
Þorri landsmanna greiðir tekjuskatt og útsvar. Hluti greiðir hins vegar fyrst og fremst fjármagnstekjuskatt.
Auglýsing

Tekjur rík­is­sjóðs af fjár­magnstekju­skatti sem lagð­ist á ein­stak­linga voru 24,2 millj­arðar króna í fyrra og er það hækkun um 2,7 pró­sent milli ára. Fjöldi gjald­enda fjár­magnstekju­skatts var tæp­lega 40 þús­und.

Til sam­an­burðar skil­aði álagður tekju­skattur á launa­fólk og útsvar sem það greiðir til sveit­ar­fé­laga, en leggst ekki á fjár­magnstekj­ur, 441,5 millj­örðum króna í tekjur fyrir rík­is­sjóð á árinu 2019. Þetta kemur fram í umfjöllun á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um álagn­ingu opin­berra gjalda á ein­stak­linga í fyrra.  

Til fjár­magnstekna telj­ast allar vaxta­­tekjur auk sölu­hagn­að­­ar, arðs og leigu­tekj­ur. Skattur á fjár­­­magnstekjur er umtals­vert lægri en á launa­­tekj­­ur. Fjár­magnstekju­skattur var hækk­aður úr 20 í 22 pró­sent í byrjun árs 2018.

Stærsti ein­staki fjár­magnstekju­lið­ur­inn voru arð­greiðsl­ur, en tekjur vegna þeirra voru 46,1 millj­arður króna á árinu 2019. Það er 5,3 pró­sent meira en árið áður. Þrátt fyrir að arð­greiðslur hafi hækkað þá dróst fjöldi þeirra sem töldu fram arð vegna árs­ins 2019  saman og var rúm­lega 13 þús­und. 

Auglýsing
Tekjur af sölu­hagn­aði voru 30,2 millj­arðar króna og voru óbreyttar milli ára, þó fjöl­skyldum sem telja fram sölu­hagnað fjölgi nokk­uð. Tekjur af vöxtum voru líka 30,2 millj­arðar króna og juk­ust um 2,5 pró­sent frá árinu 2018 en leigu­tekjur juk­ust umtals­vert, alls um 7,7 pró­sent, og voru alls 15,5 millj­arðar króna. Sam­an­lagt voru því fjár­magnstekjur vegna ofan­greindra liða 122 millj­arðar króna í fyrra. 

Alls 75 pró­sent af eignum heim­ila eru fast­eignir

Fram­taldar eignir heim­il­anna héldu áfram að hækka í virði í fyrra og námu alls 7.165 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót. Alls hækk­uðu þær um 8,8 pró­sent á árinu 2019. 

Uppi­staðan í eignum þorra lands­manna eru fast­eignir sem þeir búa í, en heild­ar­virði fast­eigna heim­il­anna var alls 5.351 millj­arðar króna í lok síð­asta árs, sem þýðir að 75 pró­sent af eignum heim­il­anna eru bundnar í slíkum eign­um. Virði fast­eigna heim­il­anna hækk­aði um 9,4 pró­sent milli áranna 2018 og 2019. Skuldir þeirra eru langt undir eign­un­um, eða 2.175 millj­arðar króna, og þær hækk­uðu hlut­falls­lega hægar en virði eign­anna, eða um 7,9 pró­sent á árinu 2019. Skuldir vegna íbúð­ar­kaupa hækk­uðu þó um tíu pró­sent milli ára.

Tæp­lega þriðj­ungur fjöl­skyldna skuldar ekki hús­næð­is­lán

Í umfjöllun fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að tæp­lega 31 þús­und af um 104 þús­und fjöl­skyldum sem eiga íbúð­ar­hús­næði telja ekki fram neinar skuldir vegna þess, eða 29 pró­sent af heild. „Af þessu leiðir að nettó­eign heim­ila, skil­greind sem heild­ar­eignir að frá­dregnum heild­ar­skuld­um, jókst um 9,2 pró­sent á árinu 2019 og nam sam­tals 4.989 ma.kr. Áfram fækkar í hópi þeirra sem eru með skuldir umfram eignir og hefur sú þróun nú verið sam­felld í níu ár. Rúm­lega 32 þús­und fjöl­skyldur eru nú með skuldir umfram eignir en á síð­asta ári voru þær tæp­lega 33 þús­und.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent