„Takmarkanir á réttindum fólks og inngrip í einkalíf þess þarf að rökstyðja“

Þingmaður Viðreisnar gerði smitrakningarforrit heilbrigðisyfirvalda að umtalsefni á þinginu í dag. Hún velti því fyrir sér hvort nauðsynlegt væri af stjórnvöldum að notast við slíkt forrit þegar staðan væri sú að smit eru lítil sem engin í samfélaginu.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir, þing­maður Við­reisn­ar, telur að nú þurfi að staldra við og taka sam­talið um smitrakn­ing­ar­for­rit stjórn­valda. Hún hélt ræðu á Alþingi í dag undir liðnum störf þings­ins en þar minnti hún á það að tak­mark­anir á rétt­indum fólks og inn­grip í einka­líf þess þyrfti að rök­styðja og nálg­ast sem frá­vik. 

„Síð­ustu vikur hafa örfá COVID-19 smit greinst og við erum auð­vitað öll þakk­lát sér­fræð­ingum okkar fyrir góðan árangur og eigum sömu­leiðis að vera þakk­lát almenn­ingi sem lagði mikið á sig til að hefta útbreiðslu far­ald­urs­ins. Þessar aðgerðir og tak­mark­anir voru auð­vitað nauð­syn­leg­ar.

Mestu tak­mörk­unum hefur nú verið aflétt en eftir stendur sumt, þar á meðal smitrakn­ing­arapp­ið. Við aðrar aðstæður hefði svona app á vegum stjórn­valda sem safnar upp­lýs­ingum um ferðir ein­stak­linga þótt meiri háttar inn­grip í frið­helgi einka­lífs og vakið mikla umræðu. Þjóðin sýndi hins vegar ábyrgð og hún sýndi traust en um þriðj­ungur þjóð­ar­innar sótti þetta app sem var kynnt sem tíma­bundin ráð­stöf­un. Með því létti þjóðin vinnu smitrakn­ing­arteymis sótt­varna­læknis og rík­is­lög­reglu­stjóra. Núna þegar opna á landið þá munu ferða­menn ann­ars vegar und­ir­gang­ast skimun, sem er auð­vitað mik­il­væg og nauð­syn­leg for­senda, en þeir verða líka hvattir til að sækja þetta app sem myndi þá rekja ferðir þeirra hér­lend­is. Þjóðin er sömu­leiðis hvatt til að halda áfram að nota app­ið,“ sagði hún. 

Auglýsing

Þor­björg Sig­ríður spurði í fram­hald­inu hvort það væri virki­lega nauð­syn­legt af stjórn­völdum að not­ast við rakn­ing­ar­for­rit þegar staðan væri sú að smit eru lítil sem engin í sam­fé­lag­inu. „Erum við þá ekki farin að nálg­ast grund­vall­ar­rétt­indi eins og frið­helgi einka­lífs af tölu­verðri létt­úð? Mér finnst vanta sam­talið hérna. Ættu stjórn­völd ekki að sýna sömu ábyrgð og almenn­ingur gerði? Þrátt fyrir tvö­falt sam­þykki, að not­andi þurfi að sam­þykkja appið og síðan að gefa sam­þykki fyrir notkun upp­lýs­ing­anna, stendur eftir að aðgerðin er bein­línis hönnuð til að safna upp­lýs­ingum um fólk til að afhenda stjórn­völdum þær. Á meðan appið er í sím­anum eru ferðir fólks rakt­ar.“

Í því ljósi spurði hún hvort stjórn­völd ættu ekki að leiða sam­tal um það hvenær þau sæju eig­in­lega fyrir sér að þess­ari ráð­stöfun linni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent