Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að miðað við stöðuna séu lífskjarasamningarnir fallnir. „Við munum ekki verja samninginn miðað við óbreytta stöðu.“ Þetta kom fram á fundi með þjóðhagsráði í gær en mbl.is greinir frá. Þann 1. september virkjast endurskoðunarákvæði lífskjarasamningsins.
Í fréttinni kemur fram að tilefnið sé að ríkisstjórnin hafi hvorki staðið við fyrirheit um afnám 40 ára verðtryggðra jafngreiðslulána né loforð um hlutdeildarlán.
„Staða þessara tveggja mála gerir það að verkum að samningarnir eru fallnir. Ábyrgðin er ríkisstjórnarinnar og fjármálaráðuneytisins. Ég er búinn að hafa samband við félaga okkar í Eflingu til að funda um stöðuna og mögulegar aðgerðir í haust.“
Ragnar Þór segir að ræða þurfi framhaldið og næstu skref. „Þegar traustið er ekki til staðar er ekki von á góðu. Því miður. Ég skil ekki ríkisstjórnina að fara með verkalýðshreyfinguna í fanginu inn í næstu þingkosningar. Það er dapurlegt að horfa upp á að lífskjarasamningarnir skuli falla á vanefndum ríkisstjórnarinnar sem er að leita eftir trausti til að vinna sig í gegnum kórónukreppuna. Það er mjög dapurleg niðurstaða.“
Hann bendir á að meðal atriða sem tekin verða til endurskoðunar séu þróun kaupmáttar og efndir stjórnvalda vegna samningsins. Nóg sé að annað þessara atriða hafi ekki gengið eftir til að fella samninginn.
Ákveðin elíta innan stjórnkerfisins lýtur allt öðrum lögmálum
Ragnar Þór tjáði sig um kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga á Facebook-síðu sinni í vikunni.
„Í ljósi yfirlýsinga stjórnvalda vegna kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga um að öll vinna sé samkvæmt því leiðarljósi sem var markað með Lífskjarasamningnum á sínum tíma vil ég koma eftirfarandi á framfæri,“ skrifar Ragnar þór en hann telur að stjórnvöld hafi séð til þess að ákveðin elíta innan stjórnkerfisins, þar með talið þau sjálf, lúti allt öðrum lögmálum þegar kemur að markmiðum lífskjarasamningsins.
Hann segir að lífskjarasamningurinn hafi ekki verið samningur sem átti að ganga yfir aðrar starfsstéttir sem ekki voru hluti af honum. „Það hljóta allir, sem minnsta vit hafa á kjarasamningagerð, að gera sér grein fyrir því að við sem komum að þessum samningum höfðum ekkert og höfum ekkert umboð til að semja fyrir þær starfsstéttir sem ekki voru hluti af Lífskjarasamningnum.
Stjórn VR styður í einu og öllu kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga og allra stétta og gerir ekki kröfu um að aðrir fái það sama eða minna en við fengum heldur fögnum við því ef aðrir ná betri árangri sem við getum svo haft að leiðarljósi í næstu samningum.“
„Það stendur ekki steinn yfir steini“
Ragnar Þór segir enn fremur að betri árangur annarra muni ekki hafa nokkur áhrif á endurskoðun þeirra í haust.
Það sé til háborinnar skammar að „hér séu opinberar og samfélagslega mikilvægar stéttir án kjarasamninga árum saman á meðan efsta lag stjórnkerfisins hefur skammtað sér krónutöluhækkanir sem jafngilda lágmarkslaunum, jafnvel margföldum, fyrir 100 prósent vinnuframlag.“
Þá segir hann að það eina sem raunverulega ógni lífskjarasamningnum séu stjórnvöld sjálf. „Það stendur ekki steinn yfir steini þegar kemur að efndum loforða og hefur mest allur tími og vinna verkalýðshreyfingarinnar farið í það að endursemja og krefja sömu stjórnvöld um sömu hluti og samið var um og skrifað var undir.
Má þar nefna verðtryggingarmálið og húsnæðismálin sem fjármálaráðuneytið hefur haldið í gíslingu mánuðum saman og útþynnt í nánast ekki neitt.“
Setja sig í stellingar fyrir komandi vetur
Ragnar Þór telur fróðlegt að sjá hvernig stjórnvöldum muni ganga að fara með „verkalýðshreyfinguna í fanginu inn í kosningaárið því eitt er víst að eins og staðan er í dag eru forsendur lífskjarasamningsins brostnar. Og fátt sem getur komið í veg fyrir að samningum verði sagt upp í haust.“
Enn fremur segir hann að þessi staða sé ekki hjúkrunarfræðingum að kenna. Þessi staða sé í boði stjórnvalda. „Stjórnvalda sem ekki eru orðanna virði og lítið sem ekkert að marka loforð þeirra, öðrum sem nú eru í samningaviðræðum til varnaðar.
Ég vil þó taka fram að ég hef átt mjög góð samskipti við félags- og barnamálaráðherra ásamt húsnæðis og mannvirkjastofnun í þeirri frábæru vinnu sem unnin hefur verið með tillögum í húsnæðismálum og endalausri viðleitni í að miðla málum gagnvart forsætis og fjármálaráðherrum.
Við skulum setja okkur í stellingar fyrir komandi vetur. Ef hann verður harður verður það í boði stjórnvalda og við skulum ekki leyfa þeim að komast upp með að klína þeirri ábyrgð á aðra,“ skrifar hann að lokum.
Í ljósi yfirlýsinga stjórnvalda vegna kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga um að öll vinna sé samkvæmt því leiðarljósi sem var...
Posted by Ragnar Þór Ingólfsson on Tuesday, June 9, 2020