Gjaldeyrisvaraforði Seðlabankans skrapp saman um 66 milljarða

Seðlabankinn seldi gjaldeyri í mars og apríl til að draga úr veikingu íslensku krónunnar. Í maí fór hún hins vegar að styrkjast hratt, sem leiddi til þess að bankinn hóf að kaupa gjaldeyri til að draga úr þeirri styrkingu.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Auglýsing

Gjald­eyr­is­vara­forði Seðla­banka Íslands var 904,3 millj­arðar króna þann 31. maí síð­ast­lið­inn. Mán­uði áður hafði hann verið 970,6 millj­arðar króna. Því dróst forð­inn saman um alls 66,3 millj­arða króna í síð­asta mán­uði, eða 6,8 pró­sent. 

Þetta kemur fram í nýjum tölum Seðla­banka Íslands um erlenda stöðu hans sem birtar voru í síð­ustu viku. 

Ástæðan er fyrst og síð­ast mikil styrk­ing krón­unnar í maí­mán­uði. Alls átti Seðla­bank­inn við­skipti fyrir rúm­lega fimm millj­arða króna í maí­mán­uði. Þar keypti hann gjald­eyri fyrir 2,7 millj­arða króna til að vinna gegn frek­ari styrk­ingu krón­unnar í lok maí­mán­að­ar. Seðla­bank­inn átti einnig umtals­verð við­skipti með eignir utan forða en umfang þeirra fór úr 286 millj­ónum króna í tæp­lega 3,3 millj­arða króna í síð­asta mán­uð­i. 

Met­inn­grip í mars

Íslenska krónan veikt­ist umtals­vert framan af ári, sér­stak­lega eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn og efna­hags­legar afleið­ingar skullu á af fullum krafti. Staðan leiddi meðal ann­ars til þess að gert var óform­legt sam­komu­lag milli Seðla­banka Íslands og líf­eyr­is­sjóða lands­ins um að þeir myndu ekki breyta krónum í annan gjald­eyri í þrjá mán­uði til að hindra enn meiri veik­ingu. Það sam­komu­lag ætti að renna út um miðjan júní­mán­uð.

Auglýsing
Vegna veik­ing­ar­innar greipa Seðla­bank­inn nokkrum sinnum inn í gjald­eyr­is­mark­að­inn í mars og apríl til að draga úr hraða veik­ingu henn­ar. Í mars seldi hann alls gjald­eyri úr forða sínum fyrir 10,2 millj­arða króna. Þar á meðal voru við­skipti upp á 3,6 millj­arða króna þann 13. mars, sem er hæsta upp­hæð upp­­hæð innan dags frá árinu 2008 hið minnsta, þegar banka­hrun varð á Íslandi.

Bank­inn hélt áfram að grípa inn í mark­að­inn í apríl og seldi þá gjald­eyri fyrir alls 7,2 millj­arða króna. Alls var hlutur Seðla­bank­ans í veltu á gjald­eyr­is­mark­aði í þeim mán­uði 36,3 pró­sent, sem er langt yfir því sem vana­legt þyk­ir. Til sam­an­burðar var hann 17,5 pró­sent í mars þrátt fyrir umtals­verð inn­grip. 

Yfir tíu pró­sent veik­ing það sem af er ári

Í lok maí, 26. og 27. þess mán­að­ar, urðu frek­ari inn­grip í mark­að­inn. Nú var Seðla­bank­inn hins vegar að kaupa gjald­eyri til að draga úr umtals­verðri styrk­ingu krón­unnar sem átt hafði sér stað dag­anna áður. Allt i allt keypti Seðla­bank­inn gjald­eyri fyrir 2,7 millj­arða króna í síð­asta mán­uði og bar ábyrgð á 14,3 pró­sent af heild­ar­veltu á gjald­eyr­is­mark­aði í krón­um. 

Erfitt er að segja nákvæm­lega til um hvað olli hinni skyndi­legu, og hröðu styrk­ingu krón­unnar sem jók alþjóð­legt virði króna í vasa íslensks launa­fólks en fækk­aði krón­unum sem útflutn­ings­fyr­ir­tæki fengu fyrir gjald­eyr­inn sem þau skiptu í krón­ur. Vert er þó að benda á að 27. maí gaf rík­is­sjóður Íslands út skulda­bréf upp á 500 millj­­ónir evra, eða 76 millj­­arða króna. Mikil eft­ir­­spurn var eftir kaupum á bréfum úr útgáf­unni og alls bár­ust til­­­boð frá yfir 200 aðilum fyrir 3,4 millj­­arða evra í hana, eða tæp­­lega sjö sinnum það sem var í boð­i. Það gaf til kynna að rík­is­sjóður gæti nokkuð auð­veld­lega sótt sér meira láns­fjár­magn í nán­ustu fram­tíð, ef vilji væri til.

Vegna þess­­arar miklu umfram­eft­ir­­spurnar tókst líka að fá betri kjör en upp­­haf­­lega var stefnt að, nánar til­­­tekið 0,3 pró­­sent­u­­stigum lægri vexti. Skulda­bréfin sem gefin voru út bera 0,625 pró­­sent vexti, eru til sex ára og á ávöxt­un­­ar­­kröf­unni 0,667 pró­­sent. 

Innan árs hefur íslenska krónan veikst gagn­vart evru um 11,7 pró­sent, en síð­ast­lið­inn mánuð hefur hún styrkst um rúm­lega fjögur pró­sent. Þá er með­talin umtals­verð veik­ing hennar síð­ari hluta lið­innar viku. Gagn­vart Banda­ríkja­dal hefur krónan veikst um 10,1 pró­sent það sem af er ári en styrkst um níu pró­sent á síð­ast­liðnum mán­uð­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent