Ferðagjöfin svokallaða, sem ætlað er að styðja við bakið á ferðaþjónustunni í kjölfar COVID, er nú aðgengileg.Tilgangurinn með gjöfinni, sem er að upphæð 5.000, er að efla ferðaþjónustuna samhliða því að hvetja landsmenn að „eiga góðar stundir á ferðalagi víðs vegar um landið,“ segir í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Á vef Ferðamálastofu má sjá þau fyrirtæki sem hyggjast taka á móti Ferðagjöfinni, þar með talin hótel, gistiheimili, afþreyingarfyrirtæki, bílaleigur og veitingastaði auk þess sem þar er hægt að sjá ýmis tilboð í tengslum við verkefnið. Enn er hægt að skrá fyrirtæki til leiks, segir í tilkynningunni.
Einstaklingar með lögheimili á Íslandi, íslenska kennitölu og eru fæddir árið 2002 eða fyrr fá rafræna Ferðagjöf að upphæð 5000 krónur. Þeir sem ekki nýta Ferðagjöfina geta gefið hana áfram, en hver einstaklingur getur notað að hámarki 15 gjafir. Hægt er að nota Ferðagjöfina til næstu áramóta.
Hvert og eitt fyrirtæki mun að hámarki tekið við 100 milljónum króna í formi ferðagjafa og fyrirtæki sem metið var í rekstrarerfiðleikum 31. desember 2019 getur að hámarki tekið við samanlagt 25 milljónum króna.
„Það er mjög ánægjulegt að þessari ívilnun í þágu ferðalaga innanlands hafi nú verið hleypt af stokkunum,“ er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur ferðamálaráðherra í tilkynningunni. „Einn og hálfur milljarður er töluverð fjárhæð og þó að hlutur hvers og eins skipti kannski ekki sköpum fyrir einstaklinginn felst í honum er þetta ótvíræð hvatning um að nýta þá fjölbreyttu og góðu þjónustu sem íslensk ferðaþjónusta hefur upp á að bjóða. Ég þakka öllum sem unnu hörðum höndum að tæknilegri útfærslu á verkefninu og ég vona að þetta íslenska ferðasumar verði okkur sem flestum bæði ánægjulegt og eftirminnilegt.“