Ferðagjöf stjórnvalda komin í gagnið

Ferðagjöfinni er ætlað að styðja við bakið á ferðaþjónustunni og hvetja landsmenn til að eiga góðar stundir. Upphæð gjafarinnar er 5.000 krónur.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Auglýsing

Ferða­gjöfin svo­kall­aða, sem ætlað er að styðja við bakið á ferða­þjón­ust­unni í kjöl­far COVID, er nú aðgengi­leg.Til­gang­ur­inn með gjöf­inni, sem er að upp­hæð 5.000, er að efla ferða­þjón­ust­una sam­hliða því að hvetja lands­menn að „eiga góðar stundir á ferða­lagi víðs vegar um land­ið,“ segir í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­in­u. 

Á vef Ferða­mála­stofu má sjá þau fyr­ir­tæki sem hyggj­ast taka á móti Ferða­gjöf­inni, þar með talin hót­el, gisti­heim­ili, afþrey­ing­ar­fyr­ir­tæki, bíla­leigur og veit­inga­staði auk þess sem þar er hægt að sjá ýmis til­boð í tengslum við verk­efn­ið. Enn er hægt að skrá fyr­ir­tæki til leiks, segir í til­kynn­ing­unni.

Ein­stak­lingar með lög­heim­ili á Íslandi, íslenska kenni­tölu og eru fæddir árið 2002 eða fyrr fá raf­ræna Ferða­gjöf að upp­hæð 5000 krón­ur. Þeir sem ekki nýta Ferða­gjöf­ina geta gefið hana áfram, en hver ein­stak­lingur getur notað að hámarki 15 gjaf­ir. Hægt er að nota Ferða­gjöf­ina til næstu ára­móta.

Auglýsing

Hvert og eitt fyr­ir­tæki mun að hámarki tekið við 100 millj­ónum króna í formi ferða­gjafa og fyr­ir­tæki sem metið var í rekstr­ar­erf­ið­leikum 31. des­em­ber 2019 getur að hámarki tekið við sam­an­lagt 25 millj­ónum króna.  

 „Það er mjög ánægju­legt að þess­ari ívilnun í þágu ferða­laga inn­an­lands hafi nú verið hleypt af stokk­un­um,“ er haft eftir Þór­dísi Kol­brúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur ferða­mála­ráð­herra í til­kynn­ing­unni. „Einn og hálfur millj­arður er tölu­verð fjár­hæð og þó að hlutur hvers og eins skipti kannski ekki sköpum fyrir ein­stak­ling­inn felst í honum er þetta ótví­ræð hvatn­ing um að nýta þá fjöl­breyttu og góðu þjón­ustu sem íslensk ferða­þjón­usta hefur upp á að bjóða. Ég þakka öllum sem unnu hörðum höndum að tækni­legri útfærslu á verk­efn­inu og ég vona að þetta íslenska ferða­sumar verði okkur sem flestum bæði ánægju­legt og eft­ir­minni­leg­t.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent