Hlutafé í eiganda Morgunblaðsins aukið um 300 milljónir

Hlutafé í Þórsmörk, eiganda Morgunblaðsins og tengdra miðla, hefur verið aukið um 300 milljónir samkvæmt tilkynningu til fyrirtækjaskrár. Eigendur útgáfufélagsins hafa lagt rekstrinum til 1,9 milljarða frá því að þeir tóku við honum 2009.

Morgunblaðið
Auglýsing

Hlutafé í Þórs­mörk ehf., félag­inu sem á útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, var aukið um 300 millj­ónir króna í síð­asta mán­uði. Hækk­unin á hlutafé félags­ins, sem fór út 606,6 millj­ónum í 906,6 millj­ón­ir, var öll greidd með pen­ing­um. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu um hækkun á hlutafé Þórs­merkur sem barst fyr­ir­tækja­skrá 19. maí síð­ast­lið­inn. Eina eign Þórs­merkur er Árvak­ur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, mbl.is og K100. Þórs­mörk hefur ekki birt árs­reikn­ing sinn vegna árs­ins 2019, enda frestur til slíks út ágúst næst­kom­andi. Því er rekstr­ar­nið­ur­staða þess árs ekki opin­ber sem stend­ur.

Mikið tap hefur verið á rekstri Árvak­urs á und­an­förnum árum. Frá því að nýir eig­endur tóku yfir félagið á árinu 2009 og fram til loka árs 2018 tap­aði félagið sam­tals um 2,2 millj­örðum króna. Tap Árvak­urs árið 2018 var 415 millj­ónir króna og jókst mikið frá árinu á und­an, þegar það var 284 millj­ónir króna. 

Hlutafé aukið um hálfan millj­arð á rúmu ári

Hlutafé Í Þórs­mörk var síð­ast aukið í byrjun árs 2019, og þá um 200 millj­ónir króna. Dótt­ur­fé­lag Kaup­­­­fé­lags Skag­­­­firð­inga (KS), Íslenskar sjáv­ar­af­urðir ehf., og félög tengd Ísfé­lagi Vest­­­­manna­eyja lögðu til 80 pró­­­­sent þeirra 200 millj­­­­óna króna sem settar voru inn í rekstur Árvak­­­­urs. Alls lögðu þessar tvær blokkir til 160 millj­­­­ónir króna af millj­­­ón­unum 200. Þær 40 millj­­­­ónir króna sem upp á vant­aði dreifð­ust á nokkra smærri hlut­hafa en eng­inn nýr hlut­hafi bætt­ist í hóp­inn við hluta­fjár­­­­aukn­ing­una. 

Á sama tíma var sam­­­­­þykktum félags­­­­­ins breytt á þann veg að stjórn þess er heim­ilt að hækka hluta­­­­­féð um allt að 400 millj­­­­­ónir króna til við­­­­­bótar með útgáfu nýrra hluta. Sú heim­ild gildir nú til árs­loka 2024. 

Auglýsing
Þegar er búið að nýta hana að mestu með 300 milljón króna hluta­fjár­aukn­ing­unni sem til­kynnt var til fyr­ir­tækja­skrár í síð­asta mán­uð­i. 

Ekki kemur fram í gögn­unum sem skilað var inn til fyr­ir­tækja­skrár hver lagði nýja hluta­féð til og upp­lýs­ingar um eign­ar­hald á Þórs­mörk hefur ekki verið upp­fært á vef fjöl­miðla­nefndar frá 28. maí 2019. 

Afskrif­uðu millj­arð

Frá því að nýir eig­endur tóku við Árvakri árið 2009 hafa þeir lagt félag­inu til rúm­­­­lega 1,9 millj­­­­arð króna. Þar af nemur fram­lagt hlutafé KS að minnsta kosti um 324 millj­­­­ónum króna og fram­lagt hlutafé tveggja félaga sem tengj­­­­ast Ísfé­lag­inu um 484 millj­­­­ónum króna. Annað þeirra er félagið Hlynur A en hitt er Ísfé­lagið sjálft.

Íslenskar sjáv­ar­af­urðir bók­færðu virði hlutar síns í Þórs­mörk á 378,1 millj­ónir króna í nýbirtum árs­reikn­ingi þeirra fyrir árið 2019. Þar kom einnig fram að Þórs­mörk skuld­aði félag­inu 68 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Sú skuld er á gjald­daga í ár, 2020. 

Í maí 2019  var ákveðið að lækka hlutafé í Þór­s­­­mörk  um einn millj­­­arð króna. Sam­­­kvæmt til­­­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­­­skráar var það gert til jöfn­unar á tapi. 

Við það lækk­­­aði hlutafé Þór­s­­­merkur úr 1,6 millj­­­arði króna í 606,6 millj­­­ónir króna. Það þýddi að eig­endur félags­­­ins hafa afskrifað millj­­­arð af því fjár­­­­­magni sem þeir settu inn í félag­ið. Síðan þá hef­ur, líkt og áður sagði, hluta­féð verið aukið um 300 millj­ónir króna. 

Eign­­­­ar­hald Þór­s­­­­merk­­ur, eig­anda Árvak­­urs, er eft­ir­far­andi sam­kvæmt heima­síðu fjöl­miðla­nefnd­ar:

  • Ram­ses II ehf., eig­andi Eyþór Lax­­­­dal Arn­alds, 20,05 pró­­­­sent
  • Íslenskar sjá­v­­­­­ar­af­­­­urðir ehf.,  ­for­sv.m. Sig­­­­ur­jón Rafns­­­­son, 20,00 ­pró­­­­sent
  • Hlyn­ur A ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Guð­­­­björg Matt­h­í­a­s­dótt­ir, 16,45 ­pró­­­­sent
  • Ísfé­lag Vest­­­­manna­eyja hf., ­for­sv.­mað­ur­ ­Stefán Frið­­­­riks­­­­son, 13,43 ­pró­­­­sent
  • Legalis s­f., ­for­sv.­mað­ur­ ­Sig­­­­ur­­­­björn Magn­ús­­­­son, 12,37 ­pró­­­­sent
  • Rammi hf., ­for­sv.­mað­ur­ Ólafur Mart­eins­­­­son, 6,14 ­pró­­­­sent
  • Þingey ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Að­al­­­­steinn Ing­­­­ólfs­­­­son, 3,59 ­pró­­­­sent
  • Stál­­­­skip ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Hall­­­­dór Krist­jáns­­­­son, 3,08 ­pró­­­­sent
  • Brekku­hvarf ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Ás­­­­geir Bolli Krist­ins­­­­son, 2,05 ­pró­­­­sent
  • Fari ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Jón Pálma­­­­son, 1,54 ­pró­­­­sent
  • Hrað­fryst­i­­­­húsið – Gunn­vör hf., ­for­sv.­mað­ur­ Einar Valur Krist­jáns­­­­son, 1,30 ­pró­­­­sent

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent