Miðstjórn Alþýðusambands Íslands segir að stjórnvöld hafi ekki staðið við sinn hluta lífskjarasamninganna, meðal annars varðandi húsnæðismál, verðtryggingu, mansal og félagsleg undirboð og sektarákvæði vegna kjarasamningsbrota.
Alþýðusambandið fer fram á viðræður við stjórnvöld um samningana og þau loforð sem þar eru gefin, samkvæmt því sem fram kemur í ályktun miðstjórnarinnar í dag.
Þar segir að forsendur lífskjarasamninganna séu samkvæmt orðanna hljóðan brostnar. Einnig lýsir miðstjórnin yfir þungum áhyggujum af stöðu launafólks og atvinnuleitenda með haustinu, í ljósi atvinnuástandsins og segir stuðningi stjórnvalda hafa verið beint til fyrirtækja, fremur en fólks.
„Mikilvægasta aðgerðin til að milda áhrifin fyrir einstaklinga og heimili, og þannig fyrir efnahagslífið, er að hækka atvinnuleysisbætur og lengja tímabil tekjutengingar. Þá verður að grípa til almennra aðgerða til að verja heimilin. Miðstjórn ASÍ fer fram á að stjórnvöld taki af skarið um úrbætur þegar í stað,“ segir einnig í ályktuninni.
Engin efnahagsleg nauðsyn fyrir niðurskurði
Miðstjórnin hafnar ennfremur öllum tillögum sem lúta að því að „senda reikninginn“ vegna björgunaraðgerða stjórnvalda vegna kórónuveirufaraldursins til almennings á næstu árum.
„Það er engin efnahagsleg nauðsyn að skera niður í heilbrigðis-, mennta- og velferðarkerfinu, selja opinberar eigur, auka gjaldtöku eða ráðast í einkavæðingu eða einkarekstur. Slíkar aðgerðir eru allar til þess fallnar að dýpka kreppuna og auka á afkomu- og skuldavanda einstaklinga og heimila,“ segir miðstjórn ASÍ.