Framleiðsla í kísilveri PPC á Bakka nærri Húsavík verður stöðvuð í lok júlí og stórum hluta starfsfólks sagt upp. Ráðist er í þessar aðgerðir vegna áhrifa COVID-19 faraldursins á heimsmarkaðsverð og eftirspurn eftir kísilmálmi. Lokunin er sögð tímabundin, í tilkynningu frá fyrirtækinu, og stefnt er að því að hefja rekstur á ný þegar markaðurinn nær sér á strik.
Félagið segist hafa leitað allra leiða til að halda framleiðslunni gangandi við þessar aðstæður, en nú hafi verið ákveðið að slökkva á báðum ofnum verksmiðjunnar í júlílok.
Fram kemur í tilkynningu að bæði starfsmenn og trúnaðarmenn þeirra hafi verið upplýstir um ákvörðunina. Gert er ráð fyrir því að starfsfólk verði endurráðið þegar framleiðslan fer aftur af stað.
Á meðan slökkt verður á ofnunum mun félagið sinna viðhaldi og endurbótum á hreinsivirki verksmiðjunnar, sem felur meðal annars í sér að hluti þaksins verður fjarlægður og nýjum tækjabúnaði komið fyrir. Þessari viðhalds- og endurbótavinnu ætti að vera lokið í ágústlok 2020, segir í tilkynningu félagsins.
Hefur trú á að markaðurinn taki við sér
Rúnar Sigurpálsson, forstjóri PCC BakkiSilicon hf., segir að erfitt hafi verið að taka þessa ákvörðun og ef raunhæf leið hefðist fundist til að forðast uppsagnir hefði hún verið farin.
„Ég er hins vegar viss um að heimsmarkaðurinn muni taka við sér að nýju. Þegar það gerist munum við setja uppgerða verksmiðjuna aftur í gang og ráða aftur eins mikið af fólkinu okkar og við getum,“ er haft er Rúnari í tilkynningu frá PCC.