Starmer sparkar skuggaráðherra fyrir illa ígrundað tíst

Keir Starmer formaður Verkamannaflokksins ákvað í dag að reka þingkonuna Rebeccu Long-Bailey úr skuggaráðuneyti sínu, fyrir að deila viðtali við breska leikkonu með fylgjendum sínum á Twitter.

Rebecca Long-Bailey var skuggaráðherra menntamála í skuggaráðuneyti Starmer. Þangað til í dag.
Rebecca Long-Bailey var skuggaráðherra menntamála í skuggaráðuneyti Starmer. Þangað til í dag.
Auglýsing

Keir Star­mer leið­togi breska Verka­manna­flokks­ins rak í dag þing­kon­una Rebeccu Long-Bailey úr skugga­ráðu­neyti sínu, eftir að hún deildi við­tali af vef Independent við bresku leikkon­una Max­ine Peake með fylgj­endum sínum á Twitt­er. 

Í við­tal­inu er haft eftir Peake að banda­ríska lög­reglan hafi lært þá tækni, að krjúpa með hné á hálsi George Floyd, á nám­skeiðum hjá ísra­elsku leyni­þjón­ust­unni. Full­yrð­ingum Peake um þetta efni hefur verið mót­mælt af ísra­elskum yfir­völdum og ekk­ert kemur fram um það í við­tal­inu við hana hvaðan þessar upp­lýs­ingar væru fengn­ar.

Rebecca Long-Bailey deildi við­tal­inu með þeim orðum að Max­ine Peake væri „al­gjör dem­ant­ur“.

Tals­maður flokks­leið­tog­ans sagði í yfir­lýs­ingu að greinin sem Long-Bailey deildi með fylgj­endum sínum á Twitter í morgun hefði falið í sér sam­sær­is­kenn­ingu um gyð­inga, en sam­tök breskra gyð­inga höfðu áður for­dæmt tístið og beðið þing­kon­una um að eyða því og biðj­ast afsök­un­ar.

Það gerði hún ekki, en sagði þó að tíst hennar hefði ekki átt að taka sem stuðn­ingi við allt það sem kom fram í grein­inn­i. 

Auglýsing

Atburða­rás dags­ins hefur nú verið hröð og nú hefur þetta mál leitt til þess að Long-Bai­ley, sem end­aði önnur á eftir Star­mer í leið­toga­kjöri Verka­manna­flokks­ins fyrr á árinu, er ekki lengur í skugga­ráðu­neyti flokks­ins, en þar var hún skugga­ráð­herra mennta­mála.

Ætlar sér að vinna traust gyð­inga

Keir Star­mer hefur sagst ætla að end­ur­heimta traust gyð­inga­sam­fé­lag­ins í Bret­landi, en þau ár sem flokk­ur­inn var undir stjórn Jer­emy Cor­byn kom oft og tíðum fram gagn­rýni vegna meints gyð­inga­hat­urs innan flokks­ins, sem flokks­for­ystan var sökuð um að láta óátalið. Rebecca Long-Bailey var einmitt náinn sam­starfs­maður Cor­byn er hann var leið­togi flokks­ins.

Er Star­­mer tók við emb­ætti flokks­for­manns í byrjun apríl lýsti hann því yfir að hann ætl­­aði að úthýsa gyð­inga­andúð algjör­­lega úr Verka­­manna­­flokkn­­um.

„Við þurfum að takast heið­­ar­­lega á við fram­­tíð­ina. Gyð­inga­andúð hefur verið smán­­ar­blettur á flokknum okk­­ar. Ég hef séð sorg­ina sem hún hefur haft í för með sér í svo mörgum sam­­fé­lögum gyð­inga. Fyrir hönd Verka­­manna­­flokks­ins, þá biðst ég for­láts,“ sagði Star­­mer í ræðu sem hann hélt við það til­efni, áður en hann hét því að „rífa eitrið út með rót­u­m.“ 

Árang­­ur­inn af vinnu sinni sagð­ist hann ætla að meta með hlið­­sjón af því hversu margir gyð­ingar sneru aftur í flokk­inn.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent