Hagstofan spáir mesta samdrætti á lýðveldistímanum

Landsframleiðsla dregst saman um 8,4 prósent, atvinnuleysi verður að jafnaði 8,2 prósent og útflutningur dregst saman um 30 prósent á árinu 2020, samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Hagstofu Íslands.

Mótmæli - Samstöðufundur með ljósmæðrum júlí 2018
Auglýsing



Sam­dráttur á lands­fram­leiðslu á Íslandi verður 8,4 pró­sent í ár sam­kvæmt end­ur­skoð­aðri þjóð­hags­spá Hag­stofu Íslands sem birt var í morg­un. Gangi spáin eftir er um að ræða mesta sam­drátt sem átt hefur sér stað frá því að lýð­veldið Ísland var stofnað árið 1944. 

Í spánni segir að slæmar horfur í ár megi rekja til veiru­far­ald­urs­ins sem veldur COVID-19 sjúk­dómn­um. Hann hafi meðal ann­ars. lamað sam­göngur á milli landa og þar af leið­andi haft mikil áhrif á ferða­þjón­ustu á Íslandi. Hag­stofan reiknar með „snörpum við­snún­ingi“ á næsta ári og að vöxtur lands­fram­leiðsl­unnar verði 4,9 pró­sent. Næstu ár eftir það er svo gert ráð fyrir hag­vexti á bil­inu 2,5-2,9 pró­sent. Horfur eru á að þjóð­ar­út­gjöld drag­ist saman um 4,4 pró­sent í ár en að þau auk­ist um 4,3 pró­sent árið 2021.

Gangi spáin eftir verður kreppan á Íslandi mun dýpri en að með­al­tali hjá ríkjum inn­an­ Efna­hags- og fram­fara­stofn­un­ar­inn­ar (OECD). Sam­kvæmt nýlegri spá hennar er áætlað sam­dráttur á meðal aðild­ar­ríkja verði sex pró­sent á þessu ári. Þá er búist við að hag­kerf­i heims­ins taki hressi­lega við sér á næsta ári og að hag­vöxtur verði 5,2 pró­sent. ­Gert er ráð fyrir að sam­dráttur í helstu við­skipta­ríkjum Íslands verði meiri en OECD gerir ráð fyrir á heims­vísu eða 6,7 pró­sent.

Auglýsing
Hagstofan gerir ráð fyrir að einka­neysla drag­ist saman um 6,1 pró­sent og að atvinnu­leysi verði að jafn­aði 8,2 pró­sent í ár. Strax á næsta ári, 2021, er því spáð að einka­neyslan taki vel við sér og vaxi um 5,5 pró­sent en að atvinnu­leysi verði enn sögu­lega hátt, eða að jafn­aði 6,8 pró­sent.

Útlit er fyrir að útflutn­ingur drag­ist saman um rúm 30 pró­sent í ár en búist er við bata á næsta ári og rúm­lega 19 pró­sent vexti.

Í spánni er þó sér­stak­lega tekið fram að veru­leg óvissa ríki um helstu for­sendur vegna far­ald­urs­ins. „Bakslag í bar­átt­unn­i við far­ald­ur­inn gæti dýpkað sam­drátt­inn í ár og dregið úr efna­hags­bata næstu ára. Á­hrif á útflutn­ings­at­vinnu­vegi gætu einnig reynst verri vegna þró­unar á mörk­uð­u­m er­lend­is. Þá er einnig tals­verð óvissa um umfang efna­hags­að­gerða stjórn­valda og á­hrif þeirra á fjár­mál hins opin­ber­a.“ 

Sam­dráttur í fjár­fest­ingu íbúð­ar­hús­næðis

Í þjóð­hags­spánni segir að veru­leg óvissa ríki um at­vinnu­vega­fjár­fest­ingu á árinu. „Far­ald­ur­inn raskar án efa ­starf­semi fyr­ir­tækja í ár sem hefur bein áhrif á fjár­fest­ing­ar­á­form þeirra og á það ­sér­stak­lega við um fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu. Í ár er reiknað með að at­vinnu­vega­fjár­fest­ing drag­ist saman um 15,5 pró­sent frá fyrra ári. Á næsta ári er gert ráð ­fyrir 11 pró­sent aukn­ingu á ný og hóf­legum vexti eftir það.“ 

Þá hafi hægt á í­búða­fjár­fest­ingu eftir vöxt síð­ustu ára. Útlit sé fyrir 9,5 pró­sent sam­drátt í fjár­fest­ing­u ­í­búð­ar­hús­næðis í ár og 3,9 pró­sent á því næsta. „Horfur eru á umtals­verðri aukn­ing­u op­in­berrar fjár­fest­ingar í ár og að vöxt­ur­inn muni nema 21,7 pró­sent sem má rekja til­ við­bragða stjórn­valda við far­aldr­in­um. Áætlað er að flýta opin­berum fram­kvæmdum og fjár­festa í tækni­innvið­u­m.“

Horfur eru á, sam­kvæmt spánni, að verð­bólga hald­ist við 2,5 pró­senta verð­bólgu­mark­mið næstu ár. Þrátt fyr­ir­ ­geng­is­lækkun í ár hafi hrá­vöru­verð lækkað á móti og slaki í hag­kerf­inu dregið úr hvata til verð­hækk­ana. 

Fréttin verður upp­færð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent