Félagsmenn Flugfreyjufélags Íslands hafa fellt nýjan kjarasamning sem aðilar skrifuðu undir hjá ríkissáttasemjara þann 25. júní síðastliðinn í atkvæðagreiðslu sem lauk í dag. Félagið mun nú meta þá möguleika sem eru í stöðunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair sem send var út í dag.
Samkvæmt tilkynningu frá Flugfreyjufélagi Íslands var á kjörskrá 921. Atkvæði greiddu 786 eða 85,3 prósent. Alls sögðu 208 eða 26,46 prósent já og nei sögðu 571 eða 72,65 prósent. Auðir voru 7 eða 0,89 prósent. Viðræður viðsemjenda verði því teknar upp að nýju svo fljótt sem auðið er.
Kjörsókn góð
„Stjórn og samninganefnd FFÍ þakkar félagsmönnum fyrir samstöðu og stuðning sem ríkt hefur síðustu mánuði. Kjörsókn var mjög góð eða 85,3 prósent og sýnir það ábyrgð og áhuga félagsmanna á starfskjörum sínum og vinnuumhverfi. Það að nýr kjarasamningur hafi verið felldur með afgerandi hætti sýnir vel að félagsmenn telja of langt gengið í þeim hagræðingarkröfum sem fólust í nýjum samningi. Stjórn og samninganefnd mun nú fara yfir málið og mæta á fund ríkissáttasemjara þegar til hans verður boðað með ríkan samningsvilja líkt og áður,“ segir í tilkynningu frá Flugfreyjufélaginu.
Segir niðurstöðuna vonbrigði
„Samningurinn var í samræmi við þau markmið sem lagt var upp með um að auka vinnuframlag en á sama tíma verja ráðstöfunartekjur flugfreyja og flugþjóna. Þá stuðlaði samningurinn að auknum sveigjanleika, bæði fyrir þróun leiðakerfis Icelandair og jafnframt sveigjanleika á vinnuframlagi fyrir starfsfólk,“ segir í tilkynningu Icelandair.
Þá kemur fram að félagið hafi nú þegar gengið frá samningum við flugmenn og flugvirkja en „eins og fram hefur komið eru langtímasamningar við flugstéttir ein af forsendum þess að félagið geti lokið fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins sem nú stendur yfir og hafið fyrirhugað hlutafjárútboð·.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir í tilkynningunni að þau hafi lagt allt kapp á að ná samningum við Flugfreyjufélag Íslands undanfarnar vikur og mánuði. „Með þessum samningi gengum við eins langt og mögulegt var til að koma til móts við samninganefnd FFÍ. Þessi samningur hefði tryggt ein bestu kjör fyrir störf flugfreyja og flugþjóna sem þekkjast á alþjóðamarkaði en á sama tíma aukið samkeppnishæfni félagsins til framtíðar. Þetta eru því mikil vonbrigði. Nú verðum við að skoða þá möguleika sem eru í stöðunni og munum gera það hratt og örugglega. Það hvílir mikil ábyrgð á okkur sem stjórna félaginu að tryggja rekstrargrundvöll þess til framtíðar og þar með verðmæti fyrir þjóðarbúið og mikilvæg störf, þar á meðal störf flugfreyja og flugþjóna.“