Icelandair hefur undirritað samning við lettneska flugfélagið airBaltic um sammerkt flug félaganna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Þar segir að um sé að ræða samstarfssamning sem felur í sér að bæði flugfélögin geti selt og gefið út flugmiða hvort hjá öðru. Þannig geti viðskiptavinir Icelandair keypt einn farseðil frá Íslandi eða Bandaríkjunum til áfangastaða airBaltic í Eystrasaltsríkjunum og Austur-Evrópu. Á móti geti viðskiptavinir airBaltic keypt miða til Íslands og yfir hafið til áfangastaða Icelandair í Norður-Ameríku.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir í tilkynningunni að með því að tengja leiðakerfi Icelandair við airBaltic bjóði þau viðskiptavinum aukna valmöguleika þegar kemur að tengingum í Eystrasaltsríkjunum og Austur-Evrópu. „Á móti geta viðskiptavinir airBaltic nýtt sér mikilvægar tengingar til Íslands og yfir hafið til fjölda áfangastaða okkar í Norður Ameríku. Samstarfið styrkir Keflavíkurflugvöll sem tengimiðstöð og styður við fjölgun ferðamanna,” segir hann.
Martin Gauss, forstjóri airBaltic, segir við sama tilefni það vera „sönn ánægja að gera samstarfssamning við öflugt félag á borð við Icelandair. Samstarf félaganna eykur valmöguleika viðskiptavina á flugi til Eystrasaltsríkjanna og með flugi í gegnum Riga til Búdapest, Prag, Varsjá og fleiri áfangastaða. Við hlökkum til samstarfsins við Icelandair sem mun gera viðskiptavinum okkar aukna möguleika á ferðalögum víða um heim.“