Ásta Sigríður Fjeldsted hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Krónunnar og hefur hún störf 1. október næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Ásta Sigríður hefur verið framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands frá 2017. „Hún starfaði fram til þess hjá þremur alþjóðlegum fyrirtækjum í meira en áratug: Fyrir ráðgjafafyrirtækið McKinsey & Company frá árinu 2012, bæði á skrifstofum þess í Tókýó og Kaupmannahöfn, þar sem hún tók þátt í eða leiddi fjölda smærri og stærri greininga-, umbóta- og umbreytingaverkefna. Áður starfaði hún hjá IBM í Danmörku og stoðtækjaframleiðandanum Össuri hf., bæði í Frakklandi og á Íslandi. Ásta Sigríður er vélaverkfræðingur með M.Sc. gráðu frá DTU, Tækniháskólanum í Danmörku,“ segir í tilkynningunni.
„Það er mikill styrkur fyrir Krónuna að fá Ástu Sigríði til að taka við stjórninni og ég er afskaplega stoltur af því að hún gangi til liðs við okkur og það reynslumikla starfsfólk sem þar starfar. Krónan hefur verið að gera frábæra hluti undanfarin ár og framundan eru miklar breytingar í rekstrarumhverfinu og þar kemur reynsla hennar fyrirtækinu til góða,“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi.
Ásta Sigríður segir að Krónan sé afskaplega spennandi fyrirtæki sem hafi verið í mikilli sókn undanfarin ár og það sé með mikilli tilhlökkun sem hún tekur við rekstrinum. „Krónan hefur á að skipa fjölda framúrskarandi starfsfólks sem hefur verið í fararbroddi á mörgum sviðum og munum við halda áfram því góða starfi, ásamt því að fást við þær miklu breytingar sem eru að verða á smásölumarkaðnum,“ segir hún.