Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur gert kröfu á stjórnvöld, og birt á Facebook, um að þau standi við gefin loforð. Hún bendir á að krafan sé uppsett eins og hefðbundin krafa frá félaginu – og segir hún að frá Eflingu séu sendar hundruð slíkra krafna um vangoldin laun á ári hverju fyrir hönd félagsfólks þeirra.
Á síðasta ári fóru frá Eflingu 700 kröfur upp á meira en 345 milljónir króna, að því er fram kemur í færslu Sólveigar Önnu. Hún segir enn fremur að verkalýðsfélög um land allt sendi einnig „út endalaust af kröfum fyrir sitt fólk“.
Hún stílar kröfuna á forsætisráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, félagsmálaráðuneytið, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið og fjármálaráðuneytið.
„Vissuð þið að á ári hverju er hundruðum milljóna stolið af félagsfólki Eflingar; vangoldin laun, orlof, desemberuppbót, orlofsuppbót og svo framvegis sem fólk á inni fyrir sína unnu vinnu látið hverfa í vasa atvinnurekandans?
Vissuð þið að það er ekki refsivert á Íslandi að stela launum af vinnuaflinu?
Vissuð þið að eitt af loforðum stjórnvalda vegna hins svokallaða Lífskjarasamnings var að „heimildir til refsinga yrðu auknar, í samráði við aðila vinnumarkaðarins, ef atvinnurekandi brýtur gegn lágmarkskjörum launamanns“?
Vissuð þið að ekkert bólar á því að þetta loforð verði uppfyllt?“ spyr Sólveig Anna.
Hafa heyrt ótal sögur um svívirðilega framkomu
Í bréfinu til ráðuneytanna segir að þau hjá Eflingu hafi heyrt ótal sögur um og séð fjölda sannana fyrir algjörlega svívirðilegri framkomu fólks sem ræður annað fólk í vinnu en sjái samt ekki ástæðu til að standa skil á launagreiðslum.
Hér fyrir neðan má lesa kröfuna í heild sinni.