Ráðherra óskaði eftir flýtimeðferð á boðuðu dómsmáli

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur óskað eftir flýtimeðferð á dómsmáli sínu gegn skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu til að fá hnekkt úrskurði kærunefndar jafnréttismála.

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Auglýsing

Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra óskaði í gær eftir flýti­með­ferð á boð­uðu dóms­máli sínu til að fá hnekkt úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála, sem komst að því að ráð­herr­ann hefði brotið gegn skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu þegar hún skip­aði ráðu­neyt­is­stjóra í fyrra. Frá þessu er greint í frétt RÚV.

Lilja höfð­aði mál gegn Haf­­dísi Helgu Ólafs­dótt­­ur, skrif­­stofu­­stjóra í for­­sæt­is­ráðu­­neyt­inu, sem kæru­­nefnd jafn­­rétt­is­­mála úrskurð­aði að Lilja hefði brotið jafn­­rétt­is­lög með því að snið­­ganga í emb­ætti ráðu­­neyt­is­­stjóra í mennta- og menn­ing­­ar­­mála­ráðu­­neyt­inu. Með því að stefna Haf­­dísi Helgu ætlar ráð­herra að reyna að ógilda úrskurð kæru­­nefnd­­ar­inn­­ar.

Greint var frá því í byrjun júní að Lilja hefði brotið jafn­­­rétt­is­lög við skipun Páls Magn­ús­­­sonar í emb­ætti ráðu­­­neyt­is­­­stjóra í fyrra, sam­­­kvæmt úrskurði kæru­­­nefndar jafn­­­rétt­is­­­mála. Hún hafi van­­­metið Haf­­­dísi Helgu í sam­an­­burði við Pál. Hæf­is­­nefnd hafði ekki talið Haf­­dísi Helgu í hópi þeirra fjög­­urra sem hæf­­astir voru taldir í starf­ið.

Auglýsing

Páll, sem var skip­aður í emb­ættið síðla árs í fyrra, hefur um ára­bil gegn trún­­­­að­­­­ar­­­­störfum fyrir Fram­­­­sókn­­­­ar­­­­flokk­inn en hann var vara­­­þing­­­maður Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks­ins í tvö kjör­­­tíma­bil í kringum árið 2000 og aðstoð­­­ar­­­maður Val­­­gerðar Sverr­is­dóttur ráð­herra Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks­ins.

Í frétt RÚV kemur fram að Lilja hafi farið fram á það við kæru­nefnd­ina að rétt­ar­á­hrifum af úrskurð­inum yrði frestað á með­an, sem nefndin hafi sam­þykkt með því skil­yrði að málið yrði borið undir dóm­stóla innan þrjá­tíu daga og óskað yrði eftir flýti­með­ferð. Þrjá­tíu dagar verða liðnir á fimmtu­dag.

Rík­is­lög­maður fer með málið fyrir Lilju, að því er fram kemur í frétt­inni, en vegna tengsla emb­ættis rík­is­lög­manns við for­sæt­is­ráðu­neytið var því útvi­stað til Víðis Smára Pet­er­sen lög­manns á Lex. Hann stað­festir við frétta­stofu RÚV að form­lega hafi verið óskað eftir því við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur í gær að málið fengi flýti­með­ferð. Dóm­stjóri taki sér jafnan fáeina daga til að meta slíkar beiðnir og verði fall­ist á hana hafi Lilja og lög­maður hennar nokkra daga til við­bótar til að stefna Haf­dísi fyrir dóm. Fall­ist dóm­stjóri ekki á flýti­með­ferð verði málið engu að síður höfð­að.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent